Rokk gegn biðlistum!
Laugardagurinn 28. Apríl - Kl. 21:00
Stórtónleikar Samfylkingarinnar á NASA,
laugardaginn 28. apríl
kl. 21 og fram eftir nóttu.
Frítt inn í boði Samfylkingarinnar
Fram koma:
Baggalútur
Sprengjuhöllin
Ske
My Summer as a Salvation Soldier
Soundspell
og sigurvegarar hljómsveitakeppni Samfylkingarinnar, sem fram fer fimmtudagskvöldið 26. apríl í Iðnó.
Samfylkingin
Ætli „Kóbalt“ taki þátt í þessari hljómsveitarkeppni. Starir þegjandi út í loftið
Það væri yndislega kaldhæðnislegt ef svo margir kæmu á þessa tónleika gegn biðlistum að maður yrði að bíða í eins og klukkutíma eftir að komast inn...
Hægan nú, spiluðu þeir ekki fyrir Sjálfstæðisflokkinn síðast og fengu forsætisráðherra til að taka lagið með þeim?
Ætli þeir fái greitt fyrir þetta?
Þeir eru greinilega hórur dauðans.
Án efa. Þeir eru eflaust á höttunum eftir einhverjum bitlingum úr digrum menningarsjóðum.
Og hver stjórnar menningarsjóðunum hér? Forsetinn?
Hvunær ætli þér stigi á svið? Klórar sér í höfðinu
Þeir eru síðastir. Inside information. Glottir
Takk. Ljómar upp Þá þarf ekki að rjúka alveg strax af stað.
Verða það ekki bara Billi, Hvæsi og Tina?
Ég sá nú bara Rauðbjörn út undan mér...
Annars voru fleiri hljóðfæraleikarar en kjósendur Samfylkingarinnar þarna í kvöld.
Besta upphitunarbandið var náttúrulega Teningahöllin (eða hvað þeir nú heita), enda sáu þeir dordingul í fyrsta laginu. Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Köntrýsveitin hebbði alveg mátt taka aðeins fleiri lög - en þeir voru nottlega langflottastir. Ljómar upp
ES: Þessi Samfylkingartexti við Frú Robinson er algerlega banal Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég missti af herlegheitunum sökum óvæntrar afmælisgleði ákveðins sjaldséðins (bíddu...er það orð?) Gestapóa.
FOKK!