Hvað kom svo úr páskaeggjunum hjá fólki? Eitthvað af viti eða tómar hörmungar? Ég fékk eina hörmung:
Hér syndum við fiskarnir sagði hornsílið.
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Einum þykir dauflegt saman.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
'eg fékk tvo málshætti með útskýringum á orðum. Það er stutt í að málshættir verði með útskýringum á sjálfum sér.
Ég keypti mér engin páskaegg þetta árið en sit uppi með þrjá málshætti úr tveim eggjum:
Blessun eykst með barni hverju.
Að ósi skal á stemma.
Auman er fljótt að fyrta.
Dóttirin fékk:
Morgunstund gefur gull í mund.
Hún var send snemma í háttinn Ljómar upp
Eigi eru allar ferðir til fjár þótt farnar sjeu
Beri oss að taka þetta bókstaflega þurfum vjer þegar í stað að endurskoða þá ákvörðun vora að sannreyna síðar í mánuðinum í eigin persónu hvort sk. 'útlönd' sjeu virkilega til Hrökklast afturábak og hrasar við.
Fjölskyldueggið kom með: Ekki eru allir viðhlægjendur vinir Ljómar upp Var líka beðinn um útskýringu.
Ég keypti tvö egg, annað handa vinkonu minni sem gat ekki komið svo ég stútaði því líka.
Í mínu mátti líta þetta- Betra er að vera sí-virðulegur en svívirðilegur.
Í hinu stóð þetta- Oft veldur lítill stóll þungum rassi.
Erfðaprinsinn fékk 3 egg, eitt er óopnað enn. Málshættir fram að þessu hjá honum:
Jafnir fiskar spyrðast best.
Dálítill oft drjúglega lætur.
Tveir málshættir. Sá fyrri á miðnætti í... dag? Og sá seinni um 12 klst síðar.
Sá fyrri var Betra er að þiggja ráð en gefa og sá síðari Handaverkin lifa hvers lengst. Var sáttur með fyrri þar sem hann reddaði pókerhönd einni en sá síðari er algjört röbbisj.
Fékk ekkert egg og gat ekki heldur gefið eggið sem ég keypti, því manneskjan stakk af til útlanda...
Ekkert allt of skemmtilegir páskar hjá mér... myndi éta eggið ef ég hefði lyst á því sem ég hef ómögulega
Góa litla gaf mér þennan: Sjálfs er höndin hollust.
Starir þegjandi út í loftið
Ég fékk kannski þennan:
Farðu í megrun bollan þín.
Dóttir mín fékk:
Augun ei leyna ef ástin er heit.
Við höfun einnig búið til breyttar útgáfur af honum sem við hlægjum af...
Augun ei leyna ef ástin er geit.
Augun ei leyna ef ástin er feit.
Svo var dóttlan mín eitt sinn að flytja málshátt... Sjaldan fellur eplið "framhjá" eikini.... þessu höfum við feðginin hegið oft af.
Þá er erfðaprinsinn búinn að opna síðasta páskaeggið og var málshátturinn þessi:
Krummi verður ei hvítur þó hann baði sig.
Um daginn - þegar við þjófstörtuðum páskunum - fengum við : ,,allt sem þú þarft í lífinu er þekkingarleysi og sjálfstraust." Nokkuð gott, finnst mér. Annars hafa þeir verið svo ómerkilegir að ég er búin að gleyma þeim...
Ég fékk: Glöggt er Gestapóans auga og Lúturinn er ekki alltaf súr
Fjölskyldueggið kom með: Ekki eru allir viðhlægjendur vinir Ljómar upp Var líka beðinn um útskýringu.
Mamma fékk þetta sama. Þá var mikið hneykslast. Eru engir prófarkalesarar hjá Nóa? Ha?
Jú, Pólskir. Starir þegjandi út í loftið