Hefur Baggalútía eigi fengið fána enn?
Ef svo er ekki þarf að greiða úr því! Tillögur?
Það er nú með fána...
Ég hinsvegar get ekki sent þér mynd af honum, því linkurinn á hana týndist einhverstaðar með gamla gestapó.
Þar höfum vér það. Ætli hæstvirtur forseti geti sýnt okkur hann?
Mja, eigi er hann slæmur. Fyrst gult er í honum er ek sáttur.xT SKÁL!
En auðvitað er aðal uppistaðan blár.
Sígsporar um, rígmontin
Flottur fáni í fögrum lit
En saman verða þessir litir að hinum eina sanna. Ákavíti er kóbalt hugans!
Síðan má nú ekki gleyma kóbaltknúna fánanum hans Ívars. Mér fannst hann helvíti öflugur.
Þetta er ekki fáni... þjóðfánar eru ALDREI með slagorð eða nafn landsins sem þeir tilheyra á sér... kannski virkar þetta sem skjaldamerki en fáni... nei...
Þetta er ekki fáni... þjóðfánar eru ALDREI með slagorð eða nafn landsins sem þeir tilheyra á sér... kannski virkar þetta sem skjaldamerki en fáni... nei...
Fyrst þessi fáni inniheldur nafn og slagorð Þjóðarinnar, er fullyrðing þín um að slíkt sé aldrei gert röng. Þar af leiðandi ertu réttdræpur.
Þá verður þú fyrst að sanna að þetta sé löglegur þjóðfáni samkvæmt alþjóðalögum, þegar þú ert búin að því skal ég vera réttdræpur...
Baggalútía viðurkennir einungis þau alþjóðalög er samræmast hagsmunum hennar. Þar af leiðandi er þetta hinn eini sanni fáni Baggalútíu sama hvað hver segir.
Í framhaldi af þessari umræðu leggjum vjer hjer með formlega til að hvert það ríki er eitthvað hefur við fánann að athuga fari sjálfkrafa á listann yfir óvinaríki Baggalútíu.
<Er obboslega feginn að vera ekki ríki... né ríkur>
Þá verður þú fyrst að sanna að þetta sé löglegur þjóðfáni samkvæmt alþjóðalögum, þegar þú ert búin að því skal ég vera réttdræpur...
Þú hefur lengi verið réttdræpur í mínum huga, það var vegna e-s sem þú skrifaðir, ég man ekki hvað. En þú þarft ekkert að óttast enn sem komið er því ég er enn að læra á nýju kanónuna mína. Ég skal láta þig fyrstan allra vita þegar ég er orðin fullnumin á hana. Ljómar upp
Nú um leið og Baggalútía hefur fána ætti ekki annað að vera hægt en að skipa Skátahöfðingja sem hefði það hlutverk að vera fánavörður.
Lítur vongóð í kringum sig og bíður eftir meðbyr eða mótbárum
Mælir með Svefnpurku í skátaforingjadjobbið