Þetta er í meira lagi ósvífið. Svo virðist sem Kaupþing hafi stolið hugmynd að auglýsingu úr undanfarandi umræðu í þræði þessum Hrökklast afturábak og hrasar við.
Er þá Kappaflingfling að njósna hér!!!
Rannsakar alls konar hlerunartæki og -tól
Ég er í sæluraðfullnægingum hérna, samt algjörlega ókynferðislegum eftir að hafa getað horft á marga kílómetra af línunni og hlustað á lagið úr frönsku þáttunum sem eru þeir vönduðustu sem ég hef á ævinni séð, enda eru þeir ljóslifandi fyrir mér enn þann dag í dag.Ljómar upp
En, man einhver eftir því þegar barnaefnið á RUV byrjaði ekki fyrr en klukkan 18:00 á miðvikudögum á t.d. Skippy eða Fílahirðinum og bleika "rip-off" pardusnum frá Hannah Barbera sem sagði alltaf "Ahhhh..." með mjög svo samkynhneigðum hætti....
NNNNNNNEEEEEEEEEIIII!!!!
Höfundur Línunnar er dáinn. Hann hvílir fyrir neðan strikið.
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4338275/10
Enn sorglegra er að eitt síðasta verkið var að vinna fyrir kókaínsugurnar í Kaupþingi.
Þurrkar tár úr augum sem myndaðist einvörðungu út af mikilli rykmyndun í andrúmsloftinu
Fin.
Eitt er a.m.k. víst: Hann var snillingur
Brestur í óstöðvandi grát
Brestur í óstöðvandi grát
Neðri vörin byrjar að titra óstjórnlega, augun fyllast tárum...
Brestur í óstöðvandi grát
Dadadadada aaaaaaaaaaaa hmmmm. Teiknar línu
Ekki sýna Vímusi hana, það er þá augljóst hvar hún endar.
Fráfall höfundar Scooby-Doo hefur þó verið fáum harmdauði.
Það eina sem ætti að gefa því hundóféti er strokleður.
Seinna stefið hjá La Linea var alltaf verra, en hið sígilt: "Bæ-júbba-Dú, Bæ-Júbba-Dú!"
FIN
ætli talsetningarnar hans guðna af sú kemur tíð séu til ennþá hjá rúv? haldið þið að það sé mögulega hægt að merja út endursýningar á þeim..?Starir þegjandi út í loftið
Þetta er áreiðanlega ennþá til. Ég trúi ekki öðru. Ég er að velta fyrir mér að fara að spyrjast fyrir um þessa þætti. Sjá hvort ekki sé hægt að fá þetta einhvern veginn.
Bugs bunny voru skemmtilegir á undan bítlamyndunum. Mikið var nú annars Ringo sætur.