Þetta höfðuð þið uppúr því að angra upptekna listamenn með frekjulegum fyrirspurnum um spam og annað álíka ómerkilegt sem ykkur kemur ekkert við.
Sóprantenórinn okkar hafði svo miklar áhyggjur af þessu gjammi, að í stað ,tigna frón, eins og segir í textanum, setti hann á það verðmiða og söng, dýra frón!
Annaðeins hneyksli við upptökur hefur ekki átt sér stað síðan Ragga ruglaðist á Benóní og Benjamín.
Skrifaði, Hin dýra tign, en samt komu dýra og tign með hástöfum
Miðað við innihald textans í heild sinni þá tel ég líklegt að dýra sé rétt.
Það getur ekki verið.
Gull þín brjóta gírug flón
er gleypa vilja hið dýra frón. Er ódýrt! Hið tigna, hið eðalborna land, er mikið betra.
Hið eðalborna - Glæsta land - Ekki, dýra glæsta land.
að fjallsins fagra mær- Hin tigna mær að sjálfsögðu!
Ísafold, magnþrungna mold!- Eðalborna fósturjörð, hin tigna jörð.
Hið tigna frón, er því í samræmi við ljóðið í heild. Dýra frón, er útúr kú. xT
Það er reyndar rétt hjá þér og biðst ég forláts án afláts. Ég var sennilega staddur á öðrum stað í textanum en ég hélt. Þetta er nýr texti, tekur smátíma að muna hann allan.
Tær snild hjá þessum öðlingumm tær snild ! ég hef ei slíkum tárum fellt síðan hún Sigga
Maggagga stamandi og holgóma , þunguð komin hátt á sjöunda mánuð saung 'Ísland úr nató og herinn á brott svo það endurómaði um landið alt í Múlakampi í dentíð. Tár og stolt okkra allra , aumu þegna Baggalútíu mynda fors regnbogans sem fær Dettifors að fölna
Náði þessu einhver?
Það held ég. Sigga hefur þó vart átt von á slíku hóli 37árum eftir andlátið.
Jukk. Bara sóðalegt.
Hjá Siggu þá, eða ?? Starir þegjandi út í loftið
GEH - hitt er bara óskhyggja.