Ég elska þig Númi. Kyssir tærnar á Núma
Þetta höfðuð þið uppúr því að angra upptekna listamenn með frekjulegum fyrirspurnum um spam og annað álíka ómerkilegt sem ykkur kemur ekkert við.
Sóprantenórinn okkar hafði svo miklar áhyggjur af þessu gjammi, að í stað ,tigna frón, eins og segir í textanum, setti hann á það verðmiða og söng, dýra frón!
Annaðeins hneyksli við upptökur hefur ekki átt sér stað síðan Ragga ruglaðist á Benóní og Benjamín.
Enn safnast í sarpinn. Ljómar upp
Dýrin á Gestapó hljóta að verða mjög ánægð með þetta.
Mikið var fréttaaukinn skemmtilegur í morgun, og fékk ég þarna mína fyrstu staðfestingu á þeim þráláta orðrómi að sumir ritstjórnarmeðlima hafi sérstakt dálæti á lesbíum. Gaman að því. Ljómar upp
En mistök dagsins voru þau að Fréttaaukinn var bæði kynntur og afkynntur laugardaginn sjötta apríl. Ljómar upp
(Einnig hjó ég eftir að sjö vikna fastan væri sögð 40 dagar, reyndi að gúgla það, en fann ekkert um það.
Eru sjö vikur ekki nær 50 dögum? Eða er þetta einhver kristilegur talningamáti?)
Þetta er miðað við föstu Sússa í eyðimörkinni. Þar fastaði hann sem kunnugt er í 40 daga og 40 nætur, alla daga nema sunnudaga - þá fór hann á Makkann. Að samanlögðu nær þetta því um 7 vikum.
Potar með grein í kinnina á Enter til að sjá hvort hann sé á lífi
Hmm...ætli það sé óhætt að ræna hann veskinu?
Anal próbum hann!
Hleypur flissandi í hringi
Kemur með yfirheyrslugræjur og listann yfir óvini ríkisins
Vjer höfum meiri áhuga á upplýsingum um hverjir af óvinum ríkisins hafa verið með Enter í haldi. Það er svo langt síðan hann hefur sjest hjer að það er nánast eina mögulega skýringin á fjarverunni Bíður eftir að Enter birtist aftur.
Nei halló halló. Ég hafði grun um að Enter væri að læðast hér á um það bil tveggja mánaða fresti, en Númi líka? Og ég missti af honum?
Andskotinn sjálfur.
Ljómar upp Sko, ég er búinn að læra eitthvað nýtt í dag, og klukkan ekki orðin hálf eitt. Stekkur hæð sína
Þetta flokkast sennilega ekki sem mistök, en...
...í gær var pistillinn "af völdum" afkynntur sem allur sannleikurinn um konur"
Ljómar upp
Voðalega eru menn farnir að vanda sig, það eru bara engin mistök lengur.
En, hver getur sagt mér hvaða Megasarlag var spilað undir pistli Gunnars Gunnarssonar? Klórar sér í höfðinu
Skoffínið er fundið!
Eins og uppljóstrað var í Fréttaaukanum í morgun þá fannst Skoffínið í Húsdýragarðinum, dulbúið sem kind.
Samkvæmt áræðanlegum heimildum voru það óvinir ríkisins sem komu því svo fyrir, en þrotlaus vinna Hlerunarstofnunar Baggalútíu varð til þess að upp komst um glæpinn, og er Skoffínið frelsinu fegið.
Eins og sjá má á Gestapó var það fyrsta verk Skoffínsins eftir að hafa losnað úr prísundinni, að skrá sig inn á Gestapó, og er það hér með formlega boðið velkomið heim.
En Skoffínið er nú þegar skráð á Gestapó ...
Já, eftir að það slapp aftur. Það var búið að vera fjarverandi ansi lengi. Hugsar grunsamlega til Óvina ríkisins
Vonandi verða engin mistök gerð á meðan sumarlokun stendur. Fellir tár
GLEÐILEGT SUMAR!
Mikið óskaplega var gaman að endurnýja kynnin við Karemommubæinn áðan. Ég beið bara eftir því að fréttaauksmenn myndu kyrja Við læðumst hægt og hljótt á tá... en það kemur bara seinna.
Gefur frá sér vellíðunarstunu
ES: Svo fá þeir Vigdísi með sér í framhaldið - er það ekki? Ljómar upp
Ætli Fréttaaukinn hafi byrjað átta mínútum of seint síðast af því að tæknimanninn vantaði? Klórar sér í höfðinu
Í Helgarútgáfunni í morgun má hlýða á Fréttaaukann sem misfórst í gær. Ljómar upp
Einnig má í þættinum heyra nýja Aðventulag Baggalúts. Ljómar meira upp
(Þetta er um ellefu leitið.)
(Aðventulagið er á þeim stað í þættinum þegar SEEK hnappurinn er rétt farinn fram hjá miðjum Rewind takkanum.)