Ég lagði orð í belg klukkan 2:56 samkvæmt þræðinum sem ég var á. Samkvæmt forsíðu Gestapós var nýjasta innleggið skráð klukkan 2:55. Stafar þetta af ólagi á tímavél forsetaembættisins?
Nú verður Vladimir brugðið.
Þetta er eðlilegt og raunar undrstaða þess að tíminn sé til.
Hélt að klukkan væri alltaf langt á undan hér ú Gestapó... hef orðið of seinn til vinnu því ég fór eftir henni...
Þetta þykja mér stórmerkileg tíðindi. Veit Vladimir af þessu?
Tímavélar eru galdratæki sem ferðast á milli tímabelta og skeiða, en eru þó langt frá því að komast fram úr eigin samtíð.
Trúi ekki öðru en hr. Vladimir sé þegar á leið austur, því ef þetta stenst þá jafnast það á við fullkomna stjórn á samrunaorkunni - að minstakosti.
Ég veit það eitt að klukkan hér er bandvitlaus. Við lifum á undarlegum tímum.
Vjer höfum nýlega verið að gera tilraunir með tímavjel vora þannig að eigi er óhugsandi að tímabundin 'bjögun' verði í Gestapó-tímanum og að atburðir gerist stundum í vitlausri röð. Biðjumst vjer afsökunar á hugsanlegum óþægindum er af þessu kunna að stafa. Þetta er vonandi bara tímabundið.
Vjer biðjumst formlegrar afsökunar á hugsanlegum óþægindum af þessu, vjer höfum verið að prófa tímavjel vora. Er því hugsanlegt að atburðir gerist stundum í undarlegri og jafnvel vitlausri röð eða að 'bjögun' verði á Gestapó-tímanum. Þetta ætti að vera tímabundið ástand.
Er það nokkuð þessar tilraunir sem valda hvarfi tuga félagsrita undanfarna daga?
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
.....prófa tímavjel vora. Er því hugsanlegt að atburðir gerist stundum í undarlegri og jafnvel vitlausri röð eða að 'bjögun' verði á Gestapó-tímanum. Þetta ætti að vera tímabundið ástand.
HvER... Vladimiiiiiiiiiir!
Ég heiti Herbjörn Hafralóns og er nýr hér á Gestapó.
Ha ?? Klórar sjer í höfðinu
Hrökklast afturábak og hrasar við
Hvar erum vjer núna? Horfir í forundran í kringum sig
Ég sé það ekki svo gjörla, en mér sýnist þú vera tvívíður.
Ég heiti Hvæsi, en ekki sá Hvæsi sem þið þekkið, heldur framtíðar Hvæsi.
Hér úr framtíðinni er allt gott að frétta, fararnir eru að mestu farnir og veðrið er hlýtt og notarlegt.
Gerðist eitthvað merkilegt á árshátíðinni 2007 ? Var gestunum kannski rænt af óvinum ríkisins ? Hrökklast afturábak og hrasar við