Kemur með vasaklútinn hans Úbba og snýtir Hvæsa svakalega til að fá ekki hor í feldinn
Gefur Hvæsa svo stórt og gott knús
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Hví opnaði ekki í gær ?
Þá hefði ég átt fyrsta rafmælið mitt.
Blótar aftur herfilega og rífur í krullurnar á Enter
Sendir Hvæsa nokkra flatkökupakka og reykta tungu í síðbúna rafmælisgjöf
Til hamingju með rafmælið í gær Hvæsi.
xT
Til hamingju Hvæsi minn.
Æji takk fyrir kveðjurnar. það er ósköp erfitt að finna íslenskar flatkökur hér á ítalíu Úbbi. Takk
Á ekki einhver þetta smáræði handa mér líka ?
Réttir fram lista
Hangikjöt, malt & appelsín, harðfisk, vatn, mjólk, skyr, jógúrt, lopapeysu
seríjós, SS pylsur, saltfisk, reykta ýsu, 5000 evrur, aðgang að stöð 2, nágranna á VHS
smá rigningu, og nokkrar gráður af kulda,
Sendist til :
Hvæsi
Flórens
Ítalíu
Það kemst til skila.
Sendir Hvæsa 3 evrur, rjóma og urriða úr Hávaðavatni
Sendir Hvæsa hálfprjónaða bleika ungbarnalopapeysu, frá árinu 1987
Sendir Hvæsa fílsrana og óskar honum innilega til hamingju
Sendir Hvæsa einn kassa af ÁkavítixT
Jæja, pakkarnir ykkar voru að koma í hús, þetta er fínasta peysa Hexía, Treður peysunni yfir höfuðið
Slengir fílsrananum um hálsinn Takk Billi.
Stingur klinkinu í vasann og hitar vatn Takk Úbbi minn.
Og þá er það mál málanna ! Opnar pakkann frá Skabba SKÁL !!!xT
En á er það næsta mál málanna, nú styttist í næsta rafmæi, sem verður 30.febrúar nk.
Ég hef ákveðið að leigja piazza della signoria sem er torgið hjá Davíð þyrlumeistara, girða það af og halda gleðskap.
Gestapóar eru sérstaklega velkomnir í veislu þar sem matur og drykkur mun fljóta um allt.
Ég kem! Við Davíð þyrlumeistari erum sko gamlir vinir. Glottir eins og fífl
Þar sem fljótandi matur er... þar er búið að vera stuð... ég mæti
HEY. Ég á rafmæli 31.02. Ljómar niður
Ertu ekki örugglega búinn að fá pakkann minn? Ég lét úrbeina svínið og alles. Mæli með því að hann sé steiktur á bálkesti fyrir utan einhverja opinbera byggingu. Það gefur víst einhvern exótískan keim hef ég heyrt.
Hér sé stuð.
Tjaldar risastóru utitjaldi og kemur fyrir 3 blútdælum
Hér verður djamm í kvöld, og það verður djamm á morgun og ekk´á morgun heldur hinn og hinn og hinn og hinn....
Mætir snemma Margfaldar hamingjuóskir með rafmælið. xT