Ok Hér eru nokkrir sem ættu að drífa í að eignast eða ættleiða börn.
Fíflagangur og Regin væru góðir í að ala upp Reginfífl.
Rafmagni og Línan mundu eignast magnaða Raflínu.
Pottormur og Loki væru góðir með litla óþekktarorminn Pottlok.
Víneik úr Vesturbænum mundi að sjálfsögðu eignast með mér efnilegt Vímusvín.
Ferskjan og Steinríkur yrðu aldeilis rík ef þau eignuðust lítinn og dúllulegan Ferskjustein.
Það væri líka völlur á Hermínu og Skara með sinn Herskara.
Hinsvegar er ég hræddur um að undan Myrkri og Bölverki kæmi bölvað Myrkraverk.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátriÞú ert bestur í þessu Vímus. Veltur út af sviðinu í hláturskrampa.
Ok Hér eru nokkrir sem ættu að drífa í að eignast eða ættleiða börn.
Fíflagangur og Regin væru góðir í að ala upp Reginfífl.
Rafmagni og Línan mundu eignast magnaða Raflínu.
Pottormur og Loki væru góðir með litla óþekktarorminn Pottlok.
Víneik úr Vesturbænum mundi að sjálfsögðu eignast með mér efnilegt Vímusvín.
Ferskjan og Steinríkur yrðu aldeilis rík ef þau eignuðust lítinn og dúllulegan Ferskjustein.
Það væri líka völlur á Hermínu og Skara með sinn Herskara.
Hinsvegar er ég hræddur um að undan Myrkri og Bölverki kæmi bölvað Myrkraverk.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Ég vildi að ég hefði bara 1% af hugmyndafluginu þínu.
Les loksins innlegg Vímusar og brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt það afskaplega fyndið
Galdrameistarinn og Ruslaskrímslið myndu eignast Ruslameistarann.
Hér eru nokkrir efnilegir uppalendur í viðbót.
Rósin og Rimi D Alw myndu aldeilis blómstra með sinn litla Rósarima.
Rokkmúsin og Rindill yrðu ekkert smá stolt af rokkandi Músarindlinum.
Galdri og Rúnin gætu hreinlega ekki slitið sig frá dúlluni henni Galdrarún
Skammkell og Krókur þyrftu ekki að hafa miklar áhyggjur af Skammarkrók.
Það er ekki spurning að ég verð að barna Sælu Sækýr og ég mun ekki sleppa hendinni af Sæluvímu.
Þarfi og Kynjólfur úr Keri færu sko ekki leynt með sína Kynþörf.
Sjáið þið fyrir ykkur Dalai Lama og Dýrið mæta með Lamadýrið í leikskólann?
Dvergur og Ríkisarfinn ættleiða obbolítið Dvergríki.
Veðurstofa Íslands og Fári Egilsson hefðu nóg að gera við að hægja aðeins á Fárviðrinu.
Bölverkur og Bakaradrengur þyrftu kannske að líða dálítið fyrir Bakverk.
Ég er þó dálítið hræddur um að Bara ég og Valþjófur Vídalín ættu ekki mikið val.
Þeirra afkvæmi yrði víst Bara Þjófur.
Hvernig ferðu að þessu Vímus ! einn og sér ættir þú að vera mannanafnanefnd baggalútíuLjómar upp SNILLD bara Gefur frá sér vellíðunarstunu
Þú segir nokkuð Dula mín. Ef þú og Blóðugt ættleidduð eitt kríli er ég sannfærður um að það yrði Dulúðugt.
Já þú segir nokkuð. Ef þíð albin munduð eignast afhvæmi þá myndi það líklegast nefnast Alvíma.
Ef ég og blóðugt myndum eignast afkvæmi saman... þá væri stelpugreyið bara alltaf á túr.
Les loksins innlegg Vímusar og brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt það afskaplega fyndið
Galdrameistarinn og Ruslaskrímslið myndu eignast Ruslameistarann.
Eða Galdraskrímslið
Ég og albin myndum þá eiga alblóðugt.
Ég og U K Kekkonen myndum eignast Tík.
Blóðugt og Upprifin myndu eignast Blóðrifinn eða Blóðidrifinn. Klórar sér í höfðinu
Eru Tigra og woody ekki foreldrar Tiger Woods?
Jú. Ég kenndi honum allt sem hann kann.
Get ekki spilað sjálf sökum þumlaleysis.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Tígra og Herbjörn kæmu til með að eignast barn sem væri fyrst sinnar tegundar á jörðinni. Tígrisbjörn.
Vlad og Texi hljóta að eignast VLATEX
forðar sér á harðahlaupum
Prins Arutha og Vímus myndu þá fara í ferðalag með Prímus.