Í handbolta þá, meinarðu? Klórar sér í höfðinu
Nei, sundknattleik.
Ekkert í heiminum tekur knattspyrnuíþróttinni fram. Nema ef vera skyldi Manchester United.
Fótbolti... Köntrísveit Baggalúts... MU... ???
Na, Bítlarnir eru betri.
Bítlarnir komu frá Liverpool, ekkert gott hefur nokkru sinni komið þaðan.
Nei, Pink Floyd er best! Ég get sannað það!
+-----------------------+----------+
| name | reach |
+-----------------------+----------+
| Pink Floyd | 11853888 |
| The Beatles | 10632337 |
| Red Hot Chili Peppers | 9320862 |
| Radiohead | 8350337 |
| Green Day | 8132437 |
| Muse | 7529449 |
| In Flames | 6453360 |
| Breaking Benjamin | 6406124 |
| Metallica | 6345690 |
| My Chemical Romance | 5535408 |
+-----------------------+----------+
Ég ætlaði nú að láta SQL-stefjuna fylgja með, en það var bara lokað hastarlega á mig. Jæja, nú vitum við þó alla vega að 'SQL-injection' sían virkar.
Stillir í botn
♪♪♪What a shame Mary Jane had a pain at the party...♪♪♪
ÁFRAM MANCHESTER UNITED!
Hey... ég heimta að fá að vera friðargæsluliði hérna... þarf að breyta nokkrum innleggjum... flautar kæruleysislega
Já, Enter. Stattu nú með hinum nýliðunum.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Billi ég fann mynd af þér í auglýsingar snepplinum frá Leikbæ - ör í haus 480böggur.
Já, þetta er sko brunaútsala.
Samt gaman að sjá að Goggi Runni og Mikjáll Jackson eru búnir að fá gerðar af sér grímur og seldar með hinum skrímslunum, spurning hvort það sé viljandi gert.
hleypur fram að ruslagubblúgunni og rótar í bæklingadraslinuÞetta verð ég að sjáfinnur ekki téðan bæklingJæja kannski eftir hádegið.Starir þegjandi út í loftið
Meiningin hlýtur að hafa verið að hræða hin skrímslin til að haga sér skikkanlega í búðinni. Starir þegjandi út í loftið
Hefur engum dottið í hug að þráður þessi eigi kannski að snúast um eitthvað allt annað en sk. 'knattspyrnulið' ? Getur ekki verið að til sje eitthvert Mancester United sem sje eitthvað allt annað en Manchester United ? Því hafa ber í huga að eitt 'h' getur stundum breytt miklu. Eigi er t.d. sama Bush og Bus.
Mig minnir að niðurstaðan af svipuðum hugleiðingum í hitteðfyrra (eða fyrr) hafi verið að Manchester United væri enskur drengjakór... eða eitthvað slíkt...