Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Hahaha, álíka fyndið djók og júróvisjón.
Á ég að andvarpa sorglega og líta undan eða öskra þig niður ?
Hér er öllum sama um þetta enska bull !
Áfram Manchester United
Þeir eru laaaangbestir. Rúla feitt og hinir sökka. Liverpool og Arsenal er búið og Chelsea farið til Sífreríu. Eða Vest Ham, eggjaskallapúns. Vá fyrr mindi maður kaupa hlutabréf í Íslenskri erfi greininu! Gott samt að vera laus við eggið úr KSÍ, vonandi kjósa þeir samt ekki kellinguna í staðinn.
En alla vega MAN U verða meistarar og þeir eru bestir og flottastir.
ERU EKKI ALLIR SAMMÁLA????
Ahem.
Þeir bera höfuð og herðar yfir önnur lið innan Ensku deildarinnar. Lið Lifrarpolls hefur séð betri daga og hið sama gildir um Skytturnar. Skeljasær er úti í kuldanum. Vesturskinka hefur versnað til muna. Ég myndi fyrr kaupa hlutabréf í Íslenskri Erfðagreiningu en Vesturskinku! Ég er feginn því að Eggert Magnússon starfar ekki lengur hjá Knattspyrnusambandi Íslands, en vona þó að Halla Gunnarsdóttir nái ekki formannskosningu.
[Hér væri gott að nefna ástæðu fyrir þessari skoðun]
Ég á von á því að Sameinaðir Mannsbringuhárungar verði meistarar, því þeir eru bestir og flottastir.
Hvað finnst ykkur?
Mér er ekki sama um það og var nú bara að reyna að keyra upp smá stemmingu hjá mannskapnum. Virkar alltaf.
Mig varðar ekkert um Breska boltasparkarar, hvað þá knattspyrnuíþróttina í heild sinni. Einn af okkar heittelskuðu ristjórnarmeðlimum kallaði handknattleik einu sinni íþrótt undirmáls og vanmáttar, og er mitt álit á knattspyrnu af svipuðum toga.
Sorglegasta tímaeyðsla sem ég get hugsað mér, næstum því.
Ég á von á því að Sameinaðir Mannsbringuhárungar verði meistarar, því þeir eru bestir og flottastir.
Hvað finnst ykkur?
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
fer niður í vopnabúr, ræsir byssumennina og fer að miða á óvininn
Áfram Manchester United. Fær sér bjór og fagnar sigri Var hann ekki örugglega að sigra?
Hvað er þetta MANCESTER UNITED eiginlega ? Hljómar einna helst eins og nafn á flugfjelagi.
ræskir sig Á ekki að vera H einhvursstaðar í nafni þessa skítaliðs?
Þetta er of hnakkaður þráður að mínu mati. Þegar fótboltakallar eru farnir að passa svo mikið upp á útlitið að þeir geta ekki lengur spilað fótbolta þá hefur fótboltinn skokkið niður í dýpra fen en nokkru sinni. Er þessvegna gersamlega óviðunandi sem íþróttagrein.
Til dæmis er ekki keppt í fótbolta á Ólympíuleikum þannig að það sannar að fótbolti er ekki íþrótt. Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Íþóttir eru mesta mein,
er manninn hefur alið.
Hnjaskið flestra brýtur bein,
betra annað valið.
Keppnisíþróttir eru sem sagt langt frá því að vera nokkrum hollar.
Yfirlýstur antisportisti strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Er ekki lágmarkið að skrifa nafnið á uppáhalds liðinu sínu rétt??? Það hefði ég allavegana haldið og svona.
Er ekki lágmarkið að skrifa nafnið á uppáhalds liðinu sínu rétt??? Það hefði ég allavegana haldið og svona.
Hvíslar Lágmarkið hjá sumum er bara ekki mjög hátt...
Þetta er vissulega lágmenning... Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Er ekki bara best að henda bara þessum þræði? Og síðan gæti þetta ekki hafa komið á verri tíma, þetta er bæði á meðan að allir eru að hugsa um handbolta og mankjester mjög nýlega búnir að tapa fyrir eina liðinu sem eitthvað er varið í.