Reglur klúbbsins:
1) Isak er konungurinn og sker úr um allt sem þarfnast úrskurðar.
2) Allir eru velkomnir.
3) Hér skulu fara fram uppbyggilegar umræður um leik konunganna, le jeu d'échecs.
1. e4 - d5
2. exd5 - Dxd5
Er einhver hér nógu smekklaus til að nota þessa vörn?
X Hrökklast aftur á bak og hrasar við er alltíeinu x á skákborðinu
Vertu velkominn í klúbbinn, dularfulli maður. Í skáklýsingum er x notað til að leggja áherslu á að í viðkomandi leik hafi maður verið drepinn. En það er rétt (og raunar skarplega athugað)að ekkert x er á (hefðbundnu) skákborði.
Ég kannast ekki við að hafa séð þessa vörn.
Hún er reyndar umtalsvert notuð (a.m.k. meðal meðalleikmanna) og kallast Drottningarpeðsgambítur, eða eitthvað slíkt. Þarna er svartur augljóslega að fórna (sbr. gambit) tíma með því að koma drottningardruslunni í þessa stöðu.
Fyrirgefðu ég hélt að þú værir að tala um fyrstu tvo leiki og ég taldi nánast víst að svartu gæti ekki drepið í sínum fyrsta leik.
Ekkert að fyrirgefa, og velkominn í klúbbinn.
Straujar skírteini
Þessi vörn er ámóta mikið rugl og að setja biskupana út á undan riddurunum.
Þessi vörn er ámóta mikið rugl og að setja biskupana út á undan riddurunum.
Rétt!
Straujar skírteini í ofboði
Býður upp á te og sörur
Sest út í horn og spilar kotru
Ég veit nú ekki alveg hvort ég eigi að leyfa þetta. Aftur á móti er ég nú ekki búinn að strauja neitt sérstaklega mörg skírteini ennþá.
Tekur blað úr gríðarlega stórum stafla, krotar á það og straujar svo annað skírteini
Er þetta enn einn þráðurinn þar sem hægt er að fá veitingar?
Sest út í horn og spilar kotru
spilar við Stelpið
Þetta er mun gáfulegra.
rifjar upp gamlan radíusþátt þar sem fjallað var um skáktöffaraklíkuna ógurlegu
rifjar upp gamlan radíusþátt þar sem fjallað var um skáktöffaraklíkuna ógurlegu
Er þetta virkilega það gáfulegasta sem menn hafa að segja um skák á þessum bæ?
Ég mæli með að við byrjum á alvöru skák. Einar tekur tilhlaup frá borðbrún og stekkur fram undir miðlínu.
Iss, þessi klúbbur er fyrir amatöra. Ég gæti unnið ykkur öll með heimaskít.
Hvernig? Með 'Jedi Mind Trick'?