Þar eð orðabók Háskólans virðist vera lokuð bók og endanleg finnst mér full þörf á að hér mætti koma viðauki við hið merka rit sem að mínum dómi verður aldrei endanlegt né síður fullkomið.
Bæti ég hér með við orðinu Undirbúningur = Nærföt
xT
Er þessi ekki frekar líkur þínum?
Reyndar eru hér ólíkindi mikil þar eð þessi þráður var stofnaður undir þeim formerkjum að teljast til menningu og mennta.
Hinn þráðurinn var í Sandkassanum sem telst til leikja og annars skepnuskapar.
Hér er ef til vill um sama viðfangsefni að glíma.
Starir þegjandi út í loftið
Nú er ég þér sammála Kondi.
Er það rangt að undirlægja sé sú er maður elskast með?
Hún kallast líka yfirsetukona sé hún ofan á í ástarleiknum.
Ég þekki konu sem ég kalla steinasafnarann. Fyrir tveimur árum var hún lögð inn með nýrnasteina og nú fyrir jólin fékk hún gallsteinakast.
Í dag þjáist hún af stöðugum verkjum í móðurlífinu og við rannsókn kom í ljós að það þarf enn einu sinni að leggja hana inn og fjarlægja nokkra legsteina.
Þetta er nú frekar keimlíkt Pétrísku orðabókinni. Ég hvet þó alla til að koma með sínar hugmyndir að nýyrðunum, prestinum getur nú yfirsést...
Að hjóla standandi, þ.e. ekki sitjandi á sætinu skyldi kallast að þjóla. Er þar lagt áherslu á það hversu mikið rassvöðvarnir eru notaðir við athæfið.
Mér finnst nú Orðabók Háskólans aðallega vera þversögn því þetta batterí hefur aldrei gefið út eina einustu orðabók Háskólans.
Orðið mergjaður ætti að vera til yfir einstakling sem er með áberandi mikinn eyrnamerg.
Happdrætti mætti eiga við það þegar maður fær drátt fyrir helbera tilviljun.