Nei... það er... rangt. Svo rangt.
Hefur þú tekið eftir að þetta ár er að verða búið' en samt bara rétt að byrja?
Ó já, líður hraðar og hraðar, hraðar í dag en í gær.
Hefur þú staðið vill öll áramótaheitin fyrir þetta ár?
Já (stafar reyndar aðallega/eingöngu af afar litlum fjölda þeirra).
Hafið þjer einhverntíma strengt áramótaheit ?
Já og oftast náð að standast ca. 48%
Hefur þú fengið hláturskast sem entist í 45 mínútur?
Já, en ekki edrú.
Hefur þú móðgað kött nýlega?
Nei. Ég og kettir erum alltaf sammála.
Hefur þú prumpað svo fúlt í 600 manna fyrirlestrarsal, hvar þú sast ca. miðjavega í salnum, að fyrirlesarinn hafði orð á því?
Nei.
Hefur þú hlaupið upp/niður stiga og ýtt á komuhnapp lyftunnar á hverri hæð af því að einhver hélt ekki lyftunni þegar þú varst rétt kominn að henni?
Nei. En ég hef hlaupið upp/niður stiga og ýtt á komuhnapp lyftunnar á hverri hæð af því að ég er fífl.
Hefur þú étið hold rándýrs?
Nautakjöt er rándýrt svo jájá.
Hefur þú reynt að skipta um kennitölu?
Jaaaa. Ég er með 'nýja' kennitölu núna. Ég er nefnilega með eitt stk. danska kennitölu.
Hefur þú stofnað löggilt fyrirtæki?
Nei
Hafið þjer ákveðið að svara þessu innleggi ?
Nei, þetta gerðist alveg óvart og af gömlum vana.
Hefur þú velt því fyrir þér hver hafi gert mest?
Nei, en þessi spurning varð mér tilefni til að gera það.
Hefur þú íhugað að taka saman öll svörin hér og gera tölfræðiúttekt á þeim?
Já. Ég hef mikinn áhuga á þessum þræði. En ég er hræddur um að það sé eitthvað um lygi hérna.
Hefur þú trú á því að það get haft áhrif á persónuleika fólks hvenær það er fætt (og á því afmæli) á árinu?
Í rauninni já, einsog svo margt annað. Ef við setjum mannsævina upp sem tré-rit, þar sem allt greinist í tvennt eftir því hvort eitthvað er eða ekki (já-nei, o.s.frv.), þar sem jafnvel fáfengilegur hlutur einsog hvort maður fékk sér vatnsglas kl. 2 eða ekki beinir rás ævinnar í aðra stefnu af tveimur. - Þá sést, að það er harla ólíklegt að ævin verði söm, hvort sem eitthvað var eða ekki, eða m.ö.o. að tréð líti í heildina eins út fyrir utan þessa einu (er) / (er-ekki) breytingu.
Reynsla fæst af atburðum í lífi einstaklings, og persónuleiki hlýtur að mótast af reynslu.
Hefur þú orðið vitni af einhverju og skilið á þeirri stundu að sama þessu eigir þú aldrei eftir að gleyma?
Jú ég man mjög vel eftir því að ég sleikti rólustöng í Steinahlíð í febrúar 1965 og túngan í mér fraus föst
hefur þú verið á dagheimili og frosið fast tunguna í staur?
Nei ég var aldrei á leikskóla eða dagheimili.
Hefur þú sungið í kirkjukór?
Já, í 10 ár. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Hefur þú sungið í karókí ?