Og fá til baka þá?
Þetta er hægt í strætó í Bretlandi og reyndist vel á meðan ég bjó þar... skrítið að bus.is hafi ekki tekið upp þetta kerfi.
Nei, Ívar neitar að gefa til baka. Allt umfram fargjald mun heita frjáls framlög til reksturs almenningsvagnakerfisins og verður vel þegið.
En það er svo gaman að vera úti í miklu frosti og blankalogni. Maður fær bara ekki fallegra veður. Svona tíu dagar á ári myndi fullnæja þessari þörf.
Ek legg til að í alheimi 2.0 verði Bandaríkin sprengd í loft upp og bútarnir sameinist Rússlandi. Þá þurfum vér aldrei að hafa meiri áhyggjur af ******* ríkisstjórninni!
Líst vel á þetta en verð samt að mótmæla 1. lið, finnst afskaplega huggulegt að hafa snjó.
Svo legg ég til að sólarhringurinn verði lengdur í 36 tíma, það væri mjög nytsamlegt.
Ég legg til að í Alheimi 2.0 verði a.m.k. einn hátíðisdagur á ári þar sem jörðin muni breyta þyngdarafli sínu í þyngdarafl tunglsins. Hægt verði að leigja sér vængi og fljúga um vegna léttleika almennings, hægt að slá heimsmet í hástökki, stangarstökki, kringlukasti ofl.
Einnig hef ég þá tillögu að í Reykjavík (eða bara í öllum bæjum í heiminum) verði einn ferkílómetri þar sem enginn núningur finnst. Það býður upp á ýmsa möguleika við sleðaferðir(sleðar yrðu reyndar óþarfir, en jæja), þótt það yrði kannski erfitt að halda buxunum uppi.
Notar bara axlabönd.
Varðandi tillöguna um einn dag á ári með aðdráttarafl á við tunglið væri auðvitað betra ef hver og einn gæti einfaldlega ráðið aðdráttaraflinu í sínu nánasta umhverfi og breytt því að vild. Jafnframt þyrfti það ekki endilega að vera það sama og aðdráttaraflið hjá öðrum nærstöddum, jafnvel þó um mikla nánd væri að ræða Ljómar upp.
Ég legg til að í Alheimi 2.0 verði a.m.k. einn hátíðisdagur á ári þar sem jörðin muni breyta þyngdarafli sínu í þyngdarafl tunglsins. Hægt verði að leigja sér vængi og fljúga um vegna léttleika almennings, hægt að slá heimsmet í hástökki, stangarstökki, kringlukasti ofl.
Einnig hef ég þá tillögu að í Reykjavík (eða bara í öllum bæjum í heiminum) verði einn ferkílómetri þar sem enginn núningur finnst. Það býður upp á ýmsa möguleika við sleðaferðir(sleðar yrðu reyndar óþarfir, en jæja), þótt það yrði kannski erfitt að halda buxunum uppi.
Gamla "góða" orðið ,sjálfrennireið, myndi þá öðlast nýtt líf, jafnvel mörg!
Notar bara axlabönd.
Það gæti reyndar líka verið erfitt, þar sem núningsleysið gerði það að verkum að þau rynnu strax af.
Notar bara axlabönd.
Það gæti reyndar líka verið erfitt, þar sem núningsleysið gerði það að verkum að þau rynnu strax af.
Er þá ekki ráðið að vera bara í samfestingum, ef maður vill endilega vera í fötum?
Það er einmitt vandamálið, það eina sem gæti hugsanlega haldið fólki í fötum væru kraftgallar. Einnig er líklegt að mörgum yrði brátt í brók þar sem alls kyns úrgangur ætti auðveldara með að komast leiðar sinnar.
Það eru nú til fleiri tegundir samfestinga en kraftgallar.
Til að mynda svona nærhald sem að þekkt er úr villta vesturs myndum, með svona lúgu aftaná.