Kynblendingur = Manneskja sem komin er hálfa leið í kynskiptiaðgerð
Ég á góðan vin sem er staurblindur og það er einhver versta fötlun sem ég veit. Það að geta séð allt nema staura veldur oftast nær Parkinsonveiki hjá staurblindum milli þrítugs og fertugs. Þó hefur reynst vel að skylda staurblinda
til að ganga með hjálma sem tvímælalaust lengir ævi þeirra staurblindu en það sama verður því miður ekki sagt um líftíma ljósastaura sem verða fyrir sífeldum árásum staurblindra.
Ósnilld segir allt sem segja þarf sem sagt ekki snilld.
Ég á góðan vin sem er staurblindur og það er einhver versta fötlun sem ég veit. Það að geta séð allt nema staura veldur oftast nær Parkinsonveiki hjá staurblindum milli þrítugs og fertugs. Þó hefur reynst vel að skylda staurblinda
til að ganga með hjálma sem tvímælalaust lengir ævi þeirra staurblindu en það sama verður því miður ekki sagt um líftíma ljósastaura sem verða fyrir sífeldum árásum staurblindra.
Riddari knéfiðlunnar er víst staurblindur líka.

Segir ekki í sálminum: Syngur vel í hjálminum?
Í ljósi mikillar umræðu í félagsritum um að hætta að reykja, losa sig við líkkistunaglana... mér finnst fínt orð yfir það vera naglhreinsun.
Það skal þó tekið fram að ég er ekki að fara að naglhreinsa að þessu sinni.
Ég leitaði lengi að hentugu íslensku orði yfir brainstorm. Þankahríð líkar mér best við.
Síðan fór ég að velta orðinu flygill fyrir mér og hvers vegna hann eigi við um grand píanó en ekki flugmann.
Þá eru komin nokkur orð yfir "brainstorm" sem ég man eftir: Hugrok, hugstormun og nú þankahríð. Gaman að þessu.
Ljómar upp
Heilarok?
Er orðið uppáferð ekki nothæft fyrir fjallgöngu?
Næring = að færa eitthvað nær sér
Þá eru komin nokkur orð yfir "brainstorm" sem ég man eftir: Hugrok, hugstormun og nú þankahríð. Gaman að þessu.
Ljómar upp
Heilahríð hef ég líka heyrt notað.
Nískupoki = Helv... gráglæru plastpokarnir sem maður freistast til að nota þegar maður tímir ekki að kaupa Bónuspoka á 20 kall.
Skandalar = Ílla farnir skór sem maður skammast sín að klæðast.
Strokleður = Flóttanaut
Ítali = maður sem er alltaf að grípa fram í fyrir öðrum.
Sokkabandssár = Sár sem maður fær á neðri hlutann á kálfanum af að vera í of þröngum sokkum.