Heh, kannski var það áfengið en vá ég hef ekki hlegið svona að skaupinu síðan 2001... jón gnarr var frábær, og tók einhver eftir hundinum sem sprakk... HVAÐ VAR ÞAÐ!!!???
En bara alveg djöfull gott skaup..Ljómar upp og fær sér annan bjór
Pottþétt áfengið... alveg pottþétt.
Já ég verð að vera komin í allnokkur áfeng glös áður en ég legg í það aftur.......kóla er ekki alveg drykkurinn með þessu........úfff
Alveg klárlega áfengið. Skaupið sökkaði. 'nuff said.
Hundurinn sem sprakk...þa var Plútó.
Þetta var fínt. Mér þótti mynd þeirra Baugsfeðga um Baugsmálið til að mynda ansi skondin. Jón Gnarr var líka skemmtilega rætinn í sínum senum - slíkt hefur ekki sést áður í Áramótaskaupi svo ég muni eftir, og gott að þarna var sett ákveðið fordæmi í þá áttina.
Já, ég er bara sáttur við þetta. Skál og gleðilegt ár!
Ég hló hvorki oft né mikið að þessu skaupi. Kannski er ég orðinn of gamall fyrir svona spé. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég hló ágætlega mikið, þótt gamall sé.
Sérlega skemmtilegt þótti mér hvernig Eyþór Arnalds var tekinn fyrir. Það er einmitt svona atburður sem hætta hefði verið á að hefði gleymst, hefði hann ekki komið fyrir í Skaupinu.
Þetta var nú bara fínt, hvorki verra né mikið betra en síðustu ár. Sum atriðin voru ekkert fyndin, önnur mjög fyndin. Svo drekkum við bara til að gleyma þessu öllu! SKÁL!!!
Á síðasta ári.
Atriðið með Páli Magnússyni var það eina sem fékk mig til að hlæja.
Þetta er í fyrsta sinn sem Eftiráramótamyndin á RÚV er betri en skaupið. (En hún er nú líka óvenju góð þetta árið.)
Þetta skaup set ég í flokk með skaupum eftirfarandi aðila:
Þórhildur Þorleifsdóttir þegar hún fékk tækifæri og misnotaði það.
Ágúst Guðmundsson síðast þegar hann var með
Gísli Snær Erlingsson 1988
Gísli Rúnar, Edda Björgvins og co 1982
Hvað var þetta með vísitöluna?
Hvað var þessi langloka með bónus?
Hvað var þessi langloka með Nylon?
Og Eyþór Arnalds? Djókurinn var ok einu sinni... En Auddi Blöndal átti ekki heima þarna!!!
Vont skaup í alla staði nema ef vera skyldi stælingin á Southpark í upphafinu.
Þetta var bráðfyndið skaup, svona á heildina litið.
Laust við Spaugstofuviðbjóð. Fyrir vikið nutu spaugstofukallarnir sín mun betur. Þeir eiga kannski að fá sér leikstjóra, þá gætu þeir orðið fyndnir aftur. Í hefðbundnu skaupi hefði Örn verið hlaupandi um með davíðskolluna svona 30% af tímanum en þarna var hann sparlega og vel notaður.
Mér fannst þetta snilld. Restinni af fjölskyldunni fannst þetta með því lélegasta frá upphafi.
Þess vegna varð fjölskylduboðið frekar vandræðalegt þegar ég var að reyna að kaffæra eigin hlátri á meðan amma fussaði og sveiaði yfir öllu saman. Það var því frekar pínlegt að horfa á þetta með allan þennan erfiða áhorfendahóp í kringum sig. ÉG held ég þurfi að sjá það einu sinni enn í einrúmi.
Miðað við hverjum fannst þetta fyndið og hverjum ekki er ekki hægt að komast að annarri niðurstöðu en að þetta hafi verið raunverulega mjög fyndið skaup.
Mér fannst þetta hið ágætasta skaup þó svo að þorri fólks sem ég hef talað við hafi ekki haft húmor fyrir þessu. Ég hygg að fólk vilji almennt ekki láta koma sér svona á óvart á gamlárskvöld heldur vilji bara fá fyrirsjáanlega og úr sér gengna brandara aftur.
Ég efast um að ritstjórn Baggalúts hefði skrifað svo lélegan texta eins og mikið af þessu var; né fallið í gamla endurnýtta brandara. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Mjög óvenjulegt skaup, margt var mjög fyndið en annað illskiljanlegt, t.d. vísitölufyllerísatriðið. Einnig veltum vjer fyrir oss hvort þetta hafi virkilega verið svo 'nördalegt' skaup að Plútó-atriðin tvö hafi snúist um þá staðreynd að Plútó hefur verið lækkaður í tign og er ei lengur reikistjarna eða hvort vjer höfum einfaldlega ekki skilið þau atriði og þau snúist um eitthvað allt annað. Einkennandi fannst oss hvað atriðin voru mörg og flest þ.a.l. stutt með örfáum undantekningum. Fín tilbreyting er á heildina er litið og a.m.k. betra en í fyrra.