Nú eru menn að þreyta frumraun sína sem umsjónarmenn skaupsins í ár. Hverju er svo spáð að komi fyrir í skaupinu sjálfu? Verður gott í því?
Setur upp spámannshattinn
Skaupið verður frekar dauft, en þó þolanlegt. Þar verður helst skaupað með Baugsmálið, Árna Johnsen og prófkjör. Einn til tveir brandarar munu verða vinsælir í tvo - þrjá daga eftir áramót, en þreytast fljótt. Eftir um það bil ár mun fólk fara að vonast eftir betra skaupi.
Tekur ofan hattinn
Persónulega hafði ég mest gaman af skaupunum '90 - '92. Þau eldast líka helvíti vel.
Ef Ágúst Guðmundsson og slap-stick húmor verður víðs fjarri þá verð ég ánægður. En hverjir leikstýra aftur, ég man að Ari Eldjárn skrifar handritið, eða misminnir mig.Starir þegjandi út í loftið
mig minnir endilega að ég hafi lesið einhversstaðar að Hugleikur Dagsson myndi hugsanlega eiga hönd í verki þessa árs, en aftur á móti er ég ekki handviss um þau mál.
Ég hlakka þó til að sjá hvað setur.
Þetta verður frumlegt og skrýtið skaup. Nýtt met í virðingaleysi verður slegið.
Tjah, ek hef eigi hugmynd um hvurnig skaupið skal verða, en ef það verður skárra en það frá því í fyrra verð ek sáttur.
Ekki ætla ég að spá miklu um áramótaskaupið, of snemmt að spá.
En ég spái því að áramótastaupið verði ljúft. Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Árni Beibý djonnnson fær uppreisn æru á ný í skaupinu og svo verður auðvitað baugsmálið einsog LOTR endalaust og stórbrotið. Ádeila á útlendingana og þá sem vilja styðja hertar aðgerðir gegn innflytjendum....bruðl og eyðsla....bara þetta týpíska einsog hefur alltaf verið.
Miðað við handritshöfunda er möguleiki á að það verði öðruvísi, sem er það sem skaupið þarfnast. Blessunarlega virðist Ágúst og klíkupakkið sem hefur haldið skaupinu í gíslingu metnaðarleysis og leiðinda frá lokum níunda áratugarins víðs fjarri (Óskarsskaupin teljast ekki til þess hóps - enda fyndin).
Ég er ekki of bjartsýn. Ég veit samt ekki hverjir eru handritshöfundar í ár, hefur alveg farið framhjá mér.
Ég geri bara alltaf ráð fyrir því að skaupið verði lélegt, er það ekki bara orðið hefð að það sé lélegt, Svona eins og að skjóta upp rakettum og kveikja í nýbúum?
Skaupið mun eflaust marka tímamót að því leyti að allir sem eru eldri en 30 ára (þar með talin víst ég.... dæsir) eru í bráðri hættu með að finnast skaupið hundleiðinlegt, hrikalega ófyndið og jafnvel fara svívirðilega yfir strikið.
Þeir sem eru undir þrítugu skiptast í nokkra hópa, en eru almennt líklegri til að fíla skaupið - þó getur brugðið til beggja vona. Þeir sem eru á aldrinum 14-24 eru í langmestri hættu við að veltast um af hlátri yfir vitleysunni og sömuleiðis veltast um í hneykslan á hinum sem skilja ekki grínið.
10 ára og yngri munu hinsvegar ekki fá neitt fyrir sinn snúð, þar eð ekkert verður í skaupinu sem höfðar til þeirra. Sex ára og yngri fá nú sjaldnast neitt í skaupið sem þau skilja, ef undanþegið er skaupið '89 þegar gert var grín að barnatímanum. Þá voru börnin þau einu sem hlógu. Þeir voru nú dagarnir...
Ég fer næstum að gráta þegar ég hugsa til þess hvernig skaupið verður. Mögulega verður þessi svartsýni mín til þess að ég hlæi samt að einhverju atriðinu, en líklega ekki samt.
Skaupið í ár verður ömurlegt, en enn ömurlegra verður að sjá þorra þjóðarinnar vonsviknari en nokkru sinni áður* yfir uppskeru ársins.
*Ef frá er talið skaupið sem Þórhildur leikstýrði. Skaupið í ár gæti hugsanlega orðið skárra en Þórhildarskaupið. Saklaus uns sekt er sönnuð og allt það....
Þetta er góð greining og eflaust sönn. Það má alltaf vona að leikara með krulluhárkollu verði hent inn svo gamla fólkið geti hlegið af enn einni Davíðseftirhermunni.
Ég hef ekki séð nema eitt skaup síðasta áratuginn. Það var slappt. Reyndar gæti verið að sökum þess hvað ég fylgist illa með því sem gerist á Íslandi hafi ég alls ekki fattað hvað skaupið var hrikalega gott. En mér finnst það afar ótrúlegt.
Þetta er góð greining og eflaust sönn. Það má alltaf vona að leikara með krulluhárkollu verði hent inn svo gamla fólkið geti hlegið af enn einni Davíðseftirhermunni.
Hakuchi minn, það er til fólk á aldrinum 30 ára til 80 ára, þú gerir þér grein fyrir því er það ekki? Klórar sér í höfðinu
Þorsteinn Guðmundsson er í handritshópnum og það þykir mér ávísun á mistök.
Í fyrra var ég orðinn vel blautur þegar skaupið byrjaði og ég hló manna hæst! Ég mundi reyndar lítið eftir því og horfði því á það aftur daginn eftir... mér var ekki skemt.
Svo ég ætla að leika hálfan leikinn aftur í ár, ég mun hella mig helblautan og veltast um af hlátri. Svo sleppi ég því bara að horfa aftur á skaupið og lifi í blekkingu um að það hafi verið fyndið. Helv. gott plan bara, þó ég segi sjálfur frá.