Grípur réttinn
Ein létt í lokin.
Fótafjöl á skipshlið
Nei, stokkur! eða er það ekki annars?
Flottur ertu hvurslags. Borð er rétta svarið.
Nú átt þú réttinn. Ljómar upp
Ætli þetta sé ekki í fyrsta skiptið sem ég fæ réttinn í þessum leik, ég á alltaf svo erfitt með þetta einhverra hluta vegna.
Skip býr yfir leyndardómi. Átta stafir.
Er þetta sérnafn á skipi?
Er „R“ í orðinu?
Og já verð ég ekki að sýna hvar R-ið er.
- R - - - - - -
Á að klára orðið?
Gæti þetta verið Freigáta?
Rétt hjá Vímusi! Vel af sér vikið. Afsakið hvað ég var lengi að bregðast við tillögunum, ég hafði næstum steingleymt þessum þræði.
Er ekki kominn tími til að endurvekja þennan leik?
Vímus þú átt réttinn.
VÍMUS!!
Verður ekki að fara að gfa manninum eitthvað örvandi, þessi slenköst hans eru farin að taka út yfir allan þjófabálk.