Þyrstir ekki þurfa salt.
Þambað er á jólum malt.
Auðmanna nú allt er falt.
Orðmynd fáséð nú er galt.
Gráir eru gamlir menn
Gráir eru gamlir menn.
Gaufast áfram fauskar.
Gráir eru gamlir menn.
Gaufast áfram fauskar
Kaldir dagar koma senn
Gráir eru gamlir menn.
Gaufast áfram fauskar
Kaldir dagar koma senn.
Kjánar rita pauskar.
Gráir eru gamlir menn.
Greiðum við upp Icesave senn.
Gráir eru gamlir menn.
Greiðum við upp Icesave senn.
Madonna giftist Guy og Penn.
Gráir eru gamlir menn.
Greiðum við upp Icesave senn.
Madonna giftist Guy og Penn.
Gift er konan mín mér enn.
Einhugur í flokkum finnst.
Einhugur í flokkum finnst
Fjandleg keytulykt er innst.
5% af þjóð er þynnst.
Einhugur í flokkum finnst
Fjandleg keytulykt er innst.
5% af þjóð er þynnst.
Þráins verður lengi minnst.
Yfir- hef ég skrítið -skegg
skrattinn þarna er á vegg,
leikur sér með skel og legg
Yfir- hef ég skrítið -skegg
skrattinn þarna er á vegg,
leikur sér með skel og legg
Með langöxi ég viðinn hegg.
Yfir- hef ég skrítið -skegg
skrattinn þarna er á vegg.
Oft ég bílnum langsum legg.
Með langöxi ég viðinn hegg.