Velkominn Sæmi.
Setur upp svuntu og kappa. Byrjar á því að þurka af rykið sem hefur safnast fyrir um alla Emblu
Má ég vera með?
Það ætti ekki að vera vandamál, ég læt fyglja með inngönguskilyrðin:
Inngönguskilyrði:
Aldraðir, eldri og miðaldra borgarar, í anda jafnt sem í árafjölda, hvort heldur um sé að ræða unga eða yngri eldri borgara, sem og þeir sem eldri eru og ungir í anda og árum.
Ef hámarksaldurinn fellur innan þess síbreytilega ramma og skilyrða sem er innan ansi teygjanlegra hugtaka, þá eru menn velkomnir í þessi samtök
Ég hlýt að vera gamall í anda.Sest í sófa og sofnar
Kemur með hraukaðan disk af flatkökum með hangiketi
Graðgar í sig flatkökum og þakkar krossu innilega fyrir
Stígur með vinstri fót inn fyrir þröskuldinn og sofnar
Hengir Ívar upp á snaga svo hann fari sér ekki að voða
Graðgar í sig flatkökum og þakkar krossu innilega fyrir
‹Kemur með hraukaðan disk af flatkökum með hangiketi›
Bara að fikta
Þetta var stuttur lúr hjá þér Sæmi. Strax rokinn í burtu aftur.
Klárar þrifin og fer að undirbúa slátur og nýmeti í kvöldmatinn
Kemur inn aftur kófsveittur eftir að hafa verið að hjálpa innflytjanda að setja inn mynd
Gott dagsverk myndi ég segja, o sei sei já.
Það er aldeilis fjölmenni hérna og það svona skemmtilegt fólk.
Fær sér kaffi og sest í ruggustólinn
SÆMI !!!Ljómar upp
Hvar hefur þú alið manninn gamli ?
Sofnar
Rumskar steinsofandi í ruggustólnum, veifar Hvæsa og sofnar aftur
Pabbbi Minn !!!!
Synir mínir!
Dregur syni sína upp í sófa, breiðir ofan á þá og svæfir þá, steinsofnar sjálfur
Mikið er hann Offari nú óheppinn maður...
Hver ert þú, hverra manna ert þú og úr hvaða sveit? Hvernig þekkirðu Offara?
Leggur sig meðan hann bíður eftir svari
Setur gúmmítappa á prjónana svo glamrið í þeim veki ekki þá sem eru að leggja sig