Jú, jú, það er ekki skorið við nögl. Viltu rjóma í kaffið, ég kýs það svart sjálf.
Jú örlítinn rjóma og mikinn sykur eða sekur eins og afi og amma sögðu jafnan.
Skenkir ögn af rjóma og ríkulega af sekri
Hann ætlar að vera kaldur áfram.
Já, það er norðan þræsingur í honum, en gott er blessað kaffið.
Talar ofaní bjórglas
Þett´er á veðurstofu íslands, nú verða sagðar veðurfréttir.
Fagurhólsmýri, suð suðvestan átta, skyggni ágætt, hiti fimm stig.
Vatnskarðshólar......
Sussar á nærstadda Lofið mér nú að heyra veðurlýsinguna.
Yakutsk, logn, þoka, skyggni 500 metrar, frost 44 stig, loftþrýstingur 1031 millibar fallandi...
Er að hlýna á Fagurhólsmýri?
Tekur fram ferðatösku og sumarföt
Er að hlýna á Fagurhólsmýri?
Tekur fram ferðatösku og sumarföt
Þeir vita nú varla hvað vetur er þarna syðra nema hvað það gustar stundum hressilega um þá.
Ég krefst inngöngu í EMBLA vegna þess hve gleyminn og kalkaður ég er!
Góðan dag, bærilega fer hann með veður í dag. Horfir út um gluggann
Kemur inn með lútsterkt rjúkandi kaffi og sest mjúkan hægindastól
Fer hlýnandi eftir því sem líður á daginn, gigtin í mjöðminni er alveg að hverfa.
Ljómar upp og sýpur á kaffinu
Eigi spáir hann vel um helgina Horfir á veðurkort er sýnir sjerlega illúðlega lægð.
Ó mig auma. Ef það er hæð yfir Grænlandi tekur gigtin sig upp í mjöðminni!!!
Ég velti þó fyrir mér ef það er hæð yfir Grænlandi og lægð fyrir austan land, erum við þá í brekku?
Já, og því brattari því verra.
Setur slátur og kartöflur á borð
Hvað þarf til að komast í þennan klúbb?
Matur!
Sest við borðið og fær sér lifrarpylsu
Áttu sykur Regína mín, mér finnst svo voða gott að strá ögn af sykri yfir lifrarpylsuna.
Vongóð
Fær sér slátur Ég held að þú hljótir að fá inngöngu út á þennan góða mat, Regína.