Ég finn hvergi þráðinn um samtök eldri borgara hér, en það var eini tilgangur minn hér inn að þessu sinni að hlusta á fréttirnar á RÚV. Maður verður víst að endurreisa þessi samtök. Blaðar í gömlum fundargerðum og finnur reglur og fundargerðir frá því í vor í handskrifuðum handritum
Hér hafa verið stofnuð samtökin Eldri og Miðaldra Borgarar Lútsins og Aldraðir (EMBLA).
Þá má fólk sem er gamalt í anda vera með o sei sei já.
Félagsmenn:
-Sæmi Fróði - öldungur
-Offari - miðaldra
-B. Ewing - nálgast miðaldurinn
-Vladimir Fuckov - fjölbreytilegur aldur sökum tímaferðalaga
-Günther Zimmermann - öldungur
-Lærði-Geöff - gamall í anda
-Aulinn - ung en eldgömul sál
-Goggurinn - enginn krakki þar á ferð
-Salka - lífsreynd og þroskuð
-Hvæsidillumeistarinn - nógu gamall til að gleyma
-albin - gamall sem á grönum má sjá
-Dr. Zoidberg - aldrað krabbadýr
-Herbjörn Hafralóns - öldungur með meiru
-Wiglihi - hlýtur að vera gamall, er alltaf á þessum þræði
-Jarmi - lúnkinn við að tálga
-Skabbi skrumari - gamall jálkur
-Skari - gamall stríðsfákur
-Dularfullur maður - dularfullur maður
-Fergesji - gamall í anda
-krossgata - miðaldra
-Húmbaba - gleyminn og kalkaður
-Regína - heiðursmaddama félagsins
-Rattati - áhugamaður um þvagleggi og hlandkoppa
-Ívar - hrukkóttur og virðulegur
-J. Stalín - gamall sem á grönum má sjá
Reglur um fundi félagsins EMBLA.
1. Hlé verður gert á fundum á 5 mínútna fresti, vegna misjafns ástands þvagblaðra félagsmanna.
2. Hlé verður gert á fundum á 30 mínútna fresti vegna tíðra blunda félagsmanna.
3. Bannað er að opna fyrir viðtækið á fundum.
4. Félagið skuli koma sér upp heimilishjálparþjónustu fyrir félagsmenn.
5. Á fundum skuli ávallt vera fótanuddkona.
Inngönguskilyrði:
Aldraðir, eldri og miðaldra borgarar, í anda jafnt sem í árafjölda, hvort heldur um sé að ræða unga eða yngri eldri borgara, sem og þeir sem eldri eru og ungir í anda og árum.
Ef hámarksaldurinn fellur innan þess síbreytilega ramma og skilyrða sem er innan ansi teygjanlegra hugtaka, þá eru menn velkomnir í þessi samtök
Baráttumál og markmið:
Tímaferðalög til betri tíma fyrir meðlimi EMBLA, þægileg sæti í tímavél.
Stærra letur á gestapó (eða gleraugnastyrkir).
Kóbaltmixtúrur og smyrsli fyrir meðlimi.
Heyrnartæki með elipton styrktum magnara í öll eyru
Heimilishjálp og fótanudd fyrir alla meðlimi (fótanuddskonan færi sig upp á skaftið)
Þvagleggir fyrir alla sem vilja, koppar fyrir hina
Aðbúnaður:
Rólegheitaherbergi fullt af ruggustólum og eitt stórt langbylgjuútvarp sem spilar eingöngu gömlu gufuna.
Sest upp í sófa og byrjar að hlusta á fréttirnar á RÚV, steinsofnar
Fiktar í tækinu með tilheyrandi skruðningum Fæst enginn til að gera við þetta skrapatól eiginlega? Staulast að næsta ruggustól með hnappinn af tækinu í höndinni
Vér gætum vel hugsað oss að skrá oss í félag þetta, enda erum vér gamlir í anda svo sem sjá má.
Miðaldra... meðalaldur deilt með tveimur? Þá myndi ég teljast miðaldra býst ég við. Þarna eru göfug markmið vel þess virði að hafa að leiðarljósi.
Hæ Sæmundur velkominn aftur.
Rífur takkann úr gigtarhrjáðum höndum Bjúgvængs og lagar tækið
Velkominn Sæmi gaman að sjá þig aftur hvar hefurðu alið manninn?
Talar einsog sigfinnur gamli í spaugstofunni
Jaaaáááhhhm!
Botnar útvarpsleikritið á gufunni
RÚV! Glæsilegt... Fær sér kaffi og Sæmund á sparibuxunum.
Fær sér kaffi og laumar kandís í munninn
Svona hættið þessum látum, sumir eru að hlusta á leikritið !
Þetta lýst mér vel á. Gömlu góðu handritin vel geymd.
Sest niður með kaffi og suðusúkkulaði og bíður eftir veðurfregnum frá Veðurstofunni
Velkominn aftur, Sæmi.
Á að taka veðrið?
Áhugasöm
Já, maður verður að vita hvort gefur á sjó á morgun.
Flatbrauð með hangiketi? Kemur með smurt
Það hefur tíðkast á mínu heimili um áraraðir að taka veðrið.
Sýpur á rjúkandi kaffi
Jú takk, ég þigg gjarnan flatbrauð með hangiketi. Er ekki örugglega væn klípa af sméri undir?