Jamm, einn undir pari er sem sagt eitthvað orð yfir dýrategund, samt bara eitt eintak, skepnur af þessari tegund dýra hafa þá sérstöðu að geta ferðast um loftin blá.
Æji, Billi, stundum gleymast þræðir.
Annars get ég sagt þér að lausnin á þorla´ksmessugátunni er á netinu núna, krossgatan.is.
Þetta eina sem ég hélt að ég hefði getað var þá rangt eftir allt saman.
Brestur í óstöðvandi grát
Af hverju er það Prikið en ekki Núllið. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Á krossgátukvöldinu á miðvikudag fyrir rúmri viku var sama vísbending og get ég glatt þig með því að þá hafði hún lausnina "núllið".
Annars hef ég verið að brjóta heilann um glóðarlampann. Það bara kemur ekkert.
Prikið, var ekki minnst á staf? Man það ekki.
(Hint: Glóðarlampinn er í raun kominn, þannig séð.)
Það tilkynnist hér með að ég, aldrei þessu vant, er ekki búin með sunnudagskrossgátuna og á enn langt í land. Kenni ég alfarið um kosningum ýmsum í sýndarheimum.
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Ég man eftir þessum þræði.
Ljómar upp
Ég líka. En ég er bara miklu minni krossgátufíkill en í fyrra. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Skyldi geta farið eins fyrir baggalútsfíkninni?
Krossgátufíknin verður bara æ meiri hjá mér. Baggalútsfíknin helst í jafnvægi.