36 lóðrétt er Vaðlaheiðarvegavinnuverkfærageymsluskúrslyklakippuhringssnagi
Aldrei hef ég vitað snaga með svo langt nafn.
Þufum við aftur að fara að tala um náttúruna?
3 rifja upp efnafræðina
11 rifja upp norrænu goðafræðina
12 þú átt væntanlega alls konar .... í þínum eldhússkápum
36 lóðrétt er Vaðlaheiðarvegavinnuverkfærageymsluskúrslyklakippuhringssnagi
Meinarðu ekki Vaðlaheiðarvegavinnuverkfærageymsluskúrslyklakippuhringssnagauppsetningarleiðbeininga-bæklingsstandsstillingarskrúfuherðing?
Efnafræði hefur aldrei verið mín sterka hlið, og ég er búin að gleyma fleiru um goðafræðina en ég get vonast til að rifja upp á ævinni.
Ellefan næstum stendur í leiðbeiningunum.
Ég vona að þú hafir ekki marist eins og Daníel þegar þú hentir þér í gólfið Tina mín og öll orðið blá og bólgin, á lágmark 11 stöðum.
Brestur í óstöðvandi grát
Knúsar Tinu litlu
Við klórum okkur nú fram úr þessu, svona eðalkonur og það 3 saman.
Flettir krossgátusíðunni til að lofta aðeins um hana
Snöktir
Bara eitt eftir. Ég skal ná því!
Snöktir meira
Er það 8?
Nuddar auma skallablettina eftir það orð
Já
Skammstöfun og erlend sletta, hjálpar það?
Þú horfir nú á National Geographic man ég. Þar er nú fjallað um náttúruna og furðuverur.
Raular Le ..... ce cheek
Æ ég man ekkert þetta lag.
Skælir
Heimsk!
Skælir meira
Bankar virðast vera lífið í dag og ríkja yfir öllu. Ég er ekki hrifin af því, sjáðu bara hvernig komið er fyrir okkur Tinu. Skallablettir hér og þar.
Dæsir
Regína rúllaði þessu orði upp og er sjálfsagt enn hárprúð og fín.
Takk. Búin.
Snöktir
Ég var búin að átta mig að lokum þarna í gær. Ertu ekki búin að kíkja á póstinn þinn Regína?
En þetta orð var mér algerlega sem lokuð bók og reif ég hár mitt í tíma og ótíma.