Hér er komin þráður fyrir að minnsta kosti mig, Regínu og Tinu St. Sebastian. Þar við munum ræða vegu og vísanir sunnudagskrossgátunnar, undir rós og alla vega. 1 Lóðrétt, Tina, í gátunni í gær....
Hugsi
Mér verður hugsað til máltækisins "vík milli vina" en get ómögulega munað hann alveg, er alveg út í mýri með hann.
Hefði ekki verið betra að hafa þráðinn í málstofu, eða jafnvel menning og menntir. Starir þegjandi út í loftið
Ef maður er með vefáskrift að Mogganum þá fær maður krossgátuna á netinu líka.
Ljómar upp
Á ég að færa þráðinn í Málstofu? Hvernig færir maður þráð?
Þræðir eru færðir með þeirri aðferð að friðargæzluliðar eru beðnir auðmjúklega um framkvæmd þess.
Ert þú kannski Friðargæsluliði Fergesji?
Ég ber upp þá auðmjúku bæn að einhver háæruverðugur Friðargæsluliði færi þennan þráð yfir á Menningu og menntir.
Nei, vér gegnum eigi svo veigamiklu starfi. Á hinn bóginn minnir oss að Ívar Sívertsen ráði lögum og lofum hér í sandkassanum. Þér gætuð kannske reynt að senda honum einkapóst.
Hvers konar moldarkökur er verið að drullumalla hér í miðjum sandkassa?!? Svona, hypjiði ykkur yfir á menning og menntir!
Mikið var þetta nú snaggaralegt og vel gert.
Ljómar upp
Þetta er miklu betra.
Allt annað líf.
Hlakkar mikið til að bulla og brugga alls konar launráð með Regínu næsta sunnudag
Fæ ég ekki að vera með í brallinu?
Brýtur heilann yfir þessum fimm orðum sem eftir eru
Svona er það að vera Moggalaus í marga mánuði. Brestur í óstöðvandi grát
Finnur voða mikið til með Tinu
Viltu sleikjó?
Ljómar upp
En jú þú ert velkomin í brallið!! Líttu bara á upphaf þráðarins.
Ljómar upp
Ljómar upp
Hendir krossgatunni frá í síðustu viku
Hérna, greining e í tvennt? e=mc2 eða eitthvað annað?
Þetta er málfræðileg greining, ekkert endilega á e, heldur sérhljóðum yfirleitt.
Skömmu síðar
Ja, kannski ekki sérhljóðum yfirleitt, en slatta.
Ég geymi allar krossgáturnar í sér kassa
Roðnar yfir njarðarhættinum í sér
Mér dettur helst í hug klofning
Þá ertu á villigötum.