Eins og fram hjá einhverjum hefur farið hefur verið sett á fót Hlerunarstofnun innan símamálaráðuneyrisins.
Nú er ætlunin að manna þá stofnun fáist tilhlýðilegt fjármagn til.
AUGLÝSING
Laus eru til umsóknar eftirtalin störf við Hlerunarstofnun Baggalútíu:
Ritari (1):
Starfssvið. Bréfaskriftir, móttaka gesta, sitja á læri forstjórans og blanda forstjóranum drykki.
Hlerarar (2-3):
Starfssvið: Uppsetning hlerunarbúnaðr, rekstur og viðhald.
Örryggisvörður (1):
Starfssvið. Gæta öryggis forstjórans og annara starfsmanna ásamt að gæta þess að óviðkomandi aðilar eigi ekki greiðan aðgang stofnunni.
Laun eru samkomulag (og verður samið um þau um leið og fjárveiting hefur fengist til stofnunarinnar)
Vinnu tími er langur og strangur.
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá í einkapósti.
Ráðið verður fljótlega.
Ráðningar
Eftirtöldum hefur verið veitt ráðning.
Rýtinga Ræningjadóttir - einkaritari
Fergesji - Yfirhlerari
Helena - Hlerari
krossgata - Hlerari
Carrie - Öryggiskona (Yfiröryggisvörður)
Regína - Dulmálssérfræðingur
ég mæli með Offara í njósnirnar, hann er hvort sem er alltaf hérna.
Fer í alveg einstaklega þrönga og efnislitla pilsdragt og setur upp þykk, snyrtilega innrömmuð gleraugu
Ég skal vera ritari! Ljómar upp
Fer í alveg einstaklega þrönga og efnislitla pilsdragt og setur upp þykk, snyrtilega innrömmuð gleraugu
Ég skal vera ritari! Ljómar upp
Þarftu þá ekki líka að setja hárið í svona hnút eða hvað sem það heitir?
Þarftu þá ekki líka að setja hárið í svona hnút eða hvað sem það heitir?
Jú, og vera með BA gráðu í naglalökkun.
Hefir það farið fram hjá mönnum hér, eða erum vér ærir, að sœkja skal um stöðurnar í einkapósti til albins?
Hefir það farið fram hjá mönnum hér, eða erum vér ærir, að sœkja skal um stöðurnar í einkapósti til albins?
Klárlega.
En ritaraefni þetta er afar álitlegt, því verður litið hjá því að eigi var um einkapóst að ræða þegar farið verður yfir umsóknir.
Hefir það farið fram hjá mönnum hér, eða erum vér ærir, að sœkja skal um stöðurnar í einkapósti til albins?
Þegiðu þarna fávitinn þinn!
Ráðningar
Rýtinga Ræningjadóttir verður veitt ráðning Ljómar upp
Vér skiljum sem svo að Rýtinga verði ráðin ellegar henni veitt ráðning.
Já.
Mætir til vinnu í einkar stórum og hyljandi rykfrakka, með barðamikinn hatt og plastgleraugu með áföstu gervinefi og skeggi
Ráðningar
Eftirtöldum hefur verið veitt ráðning.
Rýtinga Ræningjadóttir - einkaritari
Fergesji - Yfirhlerari
Mætir til vinnu í einkar stórum og hyljandi rykfrakka, með barðamikinn hatt og plastgleraugu með áföstu gervinefi og skeggi
Ég geri fastlega ráð fyrir að þú sért í viðeigandi vinnufötum undir þessum frakka. Einstaklega þröngri og efnislítilli pilsdragt, eins og um var samið.
Öh, ég á eiginlega eftir að klæða mig í vinnufatnaðinn, og er því aðeins á Evuklæðunum innanundir frakkanum.. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Það er í lagi inni á forstjóraskrifstofunni. En heldur verra fyrir utan hana.
Það er svo mikill dragsúgur þar.
Ég sé að ég er of sein til að sækja um ritarastarfið. Gæti ég kannski fengið þann starfa að koma hlerunartækjum fyrir? Ég er sannfærð um að mér takist að villa um fyrir fólki - sérstaklega karlmönnum.
Helena.
Þér verður veitt ráðning Ljómar upp