Ég er líka veik! Ég stend í þeirri trú að ég sé með streptókokkasýkingu eða eitthvað álíka smekklegt, svo að ég býst við því að fara á læknavaktina á eftir til að fá þetta staðfest.
Rifjar upp streptókokkasöguna sína
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Ég er að velta því fyrir mér hvort ég eigi að spyrja Tinu frekar út í þessi mál, en ég er efins.
Ég fæ óstjórnlega toppunarþörf núna og mig langar til að rekja 9 vikna kinnholu og ennisholusýkinguna mína sem ég barðist við í sumar og tók 3 pensillínkúra dauðans við því.Brestur í óstöðvandi grát En ég er bara guðslifandidrullufegin að því er lokið og ég óska engum slíkra höfuðkvala.
Ég er í sorg. Var að kveðja góða konu í síðasta sinn.
Ákveður að kaupa Youtube af Google til að láta loka því
Ákverður að kaupa þarfa til að geta opnað youtube
Þér þurfið þá að gauka verulegri fjárhæð að Tigru og Önnu Pönnu, þar eð þær eiga báðar hlut í honum Þarfagreini, nema þá auðvitað að þér ætlið að kaupa einhvern þarfan hlut.
Ég er örg og þreytt og veik og leiðinleg, og ég samhryggist Femínistanum.
Ákveður að kaupa Youtube af Google til að láta loka því
Ákverður að kaupa þarfa til að geta opnað youtube
Þér þurfið þá að gauka verulegri fjárhæð að Tigru og Önnu Pönnu, þar eð þær eiga báðar hlut í honum Þarfagreini, nema þá auðvitað að þér ætlið að kaupa einhvern þarfan hlut.
Nema ég geri boð í Tigru og Önnu Pönnu, og kaupi þær báðar. Starir þegjandi út í loftið
Jú, sá möguleiki er fyrir hendi.
Löt, og mér er illt í bakinu. Sem betur fer verð ég aldrei stressuð, því annars myndi sá kvilli bætast við líka.
Maður er bara hress og kátur, er samt að drepast í öklanum, en það reddast vonandi með tímanum!
Ég er að jafna mig á pestinni.
Þessi helvítis bólusótt er ansi skæð.
Bærilega takk.
Ég er himinlifandi yfir því að Afturhaldskommatittur skuli vera kominn í leitirnar.
Það er ég líka. Ljómar upp
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Ja, hvur andskotinn. Tilviljun? Það held ég ekki ...
Mœtir á staðinn og plantar nokkrum hlerunarviðtækjum.
Oss líður þolanlega, miðað við aðstæður þær er vér höfum lent í.
Mér líður svona líka vel, það er líka kominn föstudagur! Lyfir glasi og skálar