Það var frænka Önundar, ég er margbúinn að segja ykkur það. Frændi Sæmundar fór með rútu. Eyvindur og Halla eignuðust strák að nafni Erpur og Guðmundur fór í sumarfrí.
Tók Guðmundur sumarfríið í Önundarfirði?
Nei, var það ekki Önundur er tók sumarfríið í Guðmundarfirði ? Eða kannski í Loðmundarfirði ?
Undur og Stórmerki, móðurbræður Ön-undar, sáust sitjandi á sólbekk niður við Nauthólsvík mauðlandi Svanakex. Annað veifið sjússuðu þeir sig af brúsa nokkrum, ekki ólíkum olíubrúsunum gömlu, enda þyrstir eftir að hafa gengið Öskjuhlíðina síðan snemma um morguninn.
Svanakex? Er það alterego Sæmundar?
Nei, keppinautur. Alveg eins nema að mynd af svani var þrykkt á þá hlið sem átti að snúa upp.
Man nú ekki alveg hvernig þetta var allt saman, en mun reyna að afla vitneskju um málið fljótlega
Var þá Svanakexið frá kexverksmiðjunni Esju?
Jaá, var það sitt hvort? Eitthvað rámar mig í það. Ég smurði alltaf hina hliðina því það voru fleiri holur þar. Ljómar upp
Ég líka! Ljómar upp
En hvað varð um Und og Stórmerk þegar þeir voru búnir úr brúsanum?
Undur og sórmerki, þeir virðast hafa horfið sporlaust. Sporhundar finna enga slóð og á alþingi segist dómsmálaráðherrann aldrei hafa heyrt á þessa menn minnst.
Gögn leyniþjónustunar um málið segir hann ógna öryggi ríkisins verði þær birtar, en harðneitar svo að hafa lesið þær, enda séu þær sennilega ekki til.
Hélt því síðan blákalt fram að um misskilning væri að ræða og menn væru að blanda saman mörgum óskyldum óútskýrum atburðum.
Tók sem dæmi, ólöglega útilegu, sauðaþjófnað, hvarf Önundar af Mokka, kexframleiðslu, fullyrðingar fyrverandi strætóbílstjóra um að hafa séð allt pakkið fljúga vestur á firði með viðkomu í Loðmundafirði og sitthvað fleira týni hann til.
Kóróna endaleysunnar er þó sú að fjöldi vitna sá Sæmund, Eyvind, Höllu og olíubrúsann sitja á brúsapalli í leið jökulfjarðarútunnar, en neita samt öll að hafa séð nokkurt þeirra í rútunni sjálfri.
Spurningu þinni get ég því ekki svarað, en prófaðu að spyrja Guðmund.
Guðmundur vísaði á Leif Arnar og Brand Ara. Það væri nær að kanna hvort Önundur hafi ekki einhver tengsl við Sigurbóbó og Aðalbegga, því þeir vita eitt og annað í þessum dúr.
Klórar sér í höfðinu En er flugvélin ekki löngu lent? Hefði ekki verið hægt að fylgjast með því þegar farþegar fóru frá borði hverjir voru í vélinni?
Farð þú að taka til!
Bara ef þú hafðir leyfi til að fara inn í vélina.
Auðveldara er að fylgjast með þeim sem koma út úr vélinni.
Þetta hefur án efa verið tímavélin sem óvinir ríkisins rændu og létu líta svo út sem flugvél væri.
Og flugu svo út í buskann án þess að nokkur gæti rönd við reist.
Hefur einhver séð brauðgerðarbræðurna?