Ég man ekki hvenær ég fór síðast í bað. Ég nota sturtu og hef gert í mörg ár, held ég.
Jú ég baðaði þig fyrir jólin í fyrra afstyrmið þitt - taktu alsæmer lyfin þín!
Bíddu nú við,,, á ég kött, eða,,, ég er ekki viss, sko búin að steingleyma því ! ! !
Ég á hvað, tvö börn, minnir mig.
Ég mundi ekki eftir bjórnum sem var í töskunni minni. Ég man ennþá ekki eftir því að hafa ekki drukkið hann.
Vjer munum eigi með fullkominni vissu hvort vjer höfum áður tjáð oss í þessum þræði. Líklega þó ekki og er tilgangur þessa innleggs að bæta úr því Tekur formlega ákvörðun þess efnis að smella á 'Senda' en gleymir að tilkynna opinberlega um ákvörðunina.
Vér munum eigi lengur hvað það var er vér sögðum fyrst hér á Gestapó.
Grætur fögrum tárum yfir því.
Djö,,,, ég man ekkert hvað ég ætlaði að segja, en það var rosalega sniðugt !
ég man ekki neitt
Ég man ekki hvort ég er að koma eða fara.
Man ég hvað,,,,, hvar eru dyrnar á herberginu, ég man það ekki heldur.
hvort ég man, hvað ertu að gera hér.
♪♪Roy, finnurðu' ekki nýju lyktina' af mér?♪♪
♪♪Þetta' er ekki lyktin sem er alltaf af þér!♪♪
♪♪Nei, þessi nýja, alveg fyrirtak!♪♪
♪♪Hvað er hún kölluð?♪♪
♪♪Ammóníak!♪♪
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið