Ég vill hér með tilkynna að ég verð frábrugðin frá Gestapó komandi vikur. Ástæður eru þær að ég kem til með að vera upptekin með skólavinnu einhverjar vikur, einnig verð ég í London eina vikuna og tek ekki með mér lappann, og síðast en ekki síst kem ég til með að standa í flutningum. Þegar ég kem aftur verð ég staddur á norðurlandinu, nánar tiltekið á Akureyri. Skjáumst síðar.
Hvaða ævintýraheim er manneskjan er tala um?
Ég þarf að bregða mér á salernið... verð ekki lengi.
Nú hann er að fara að ferðast um norður öræfi einhvers fantasíulands með einhvern Lappa sem leiðsögumann.
Hristir kamarinn
Er það hluti af einhverjum drykkjuleik?
Ég er að fara að gera heiðarlega tilraun til að hrista af mér ljótuna og páskafeituna í sundlauginni.
Andskotinn....
Þessi síða er svakalega ávanabindandi.
Þið bara eruð of skemmtileg.
...
Og þar með deyr þráðurinn
Heiðarleiki og einlægni eru plágur sem ber að forðast sem heita eldavélahelluna
Nei þessi þráður er nú ekki alveg dáinn, hér með tilkynnist að Dularfulli maðurinn ætlar að bregða sér út á lífið rétt aðeins til að anda af sér smá reykjarfnyk í miðbæ reykjavíkur.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að brátt hefjast formlegar athuganir vorar á því hvort sk. 'útlönd' sjeu í raun og veru til og þá eigi hvað síst hvort virkilega geti verið að þau leynist á enn fleiri stöðum en áður hefur verið talið. Munum vjer því brátt verða fásjeðir hjer um nokkurt skeið en birtumst á ný nálægt næstu mánaðamótum. Skál !
Mundu að kaupa fyrir mig mintuteið, pelssloppinn, nifteindasprengjuna og eyrnapinnana með lífrænt ræktuðum bómul meðan þú ert þarna úti.
Ég ætla að bregða mér í miðbæinn, þessir eldsvoðar verða ekki til að sjálfu sér
Það tilkynnist hjer með opinberlega að brátt hefjast formlegar athuganir vorar á því hvort sk. 'útlönd' sjeu í raun og veru til og þá eigi hvað síst hvort virkilega geti verið að þau leynist á enn fleiri stöðum en áður hefur verið talið. Munum vjer því brátt verða fásjeðir hjer um nokkurt skeið en birtumst á ný nálægt næstu mánaðamótum. Skál !
Það hlaut að vera , ég var farin að hafa töluverðar áhyggjur af þessu , ég verð að segja það.
Svo er ég að fara út líka þannig að ég verð frá um tíma .Ljómar upp
Eg er ad fara en kem alltaf aftur.Glottir eins og fífl
Ég verð norður á Akureyri um helgina þannig að ég verð frábrugðin þessa helgi. Mun líklegt er að ég komi aftur.
Ég verð norður á Akureyri um helgina þannig að ég verð frábrugðin þessa helgi. Mun líklegt er að ég komi aftur.
Ég verð líka á norðurlandi. Vonandi hefur það ekki teljandi áhrif á Mafíuleikinn. Ég mun leggja inn atkvæði engu að síður.