Velkominn heim, þýðir þetta ekki fitusnautt fæði hér eftir?
Dæsir mæðulega og vorkennir Herbirni voða mikið
Velkominn heim, þýðir þetta ekki fitusnautt fæði hér eftir?
Dæsir mæðulega og vorkennir Herbirni voða mikið
Fitusnautt? Nei, ekki endilega. Ég verð samt að fara varlega til að byrja með og þreifa mig áfram til að vita hvað ég þoli.
Velkominn aftur. Vona að allt hafi gengið að óskum.
Færir Herbirni blómvönd og konfekt
Takk fyrir, Carrie. Já, já þetta gekk allt vel. Setur blómin í vasa og opnar konfektkassann
Ég verð á rassgatinu um helgina.
Ertu að koma í bæinn Offari ?
Ég kom og sá engann sem ég þekkti svo ég bara fór aftur, ég allavega sá Esjuna.
Ég mun bregða mér vestur nú eftir hádegið til svonefnds Ísafjarðar og hlera hvort mikið sé um óvini ríkisins og þá þar. Ferð þessi mun taka 3 daga og óvíst um aðgang að tölvu og neti á meðan.
Pakkar niður hlerunargræjum í sindrandi og blikandi áltöskur, vel pússaðar
Komst heilu og höldnu á staðinn, það var hægt að kalla suma hluta leiðarinnar vegi ef maður notaði ímyndunaraflið ríkulega. Er að koma fyrir hlerunargræjunum. Hér er hávaðarok og fjöllin eru að hrynja yfir allt.
Ég mun bregða mér vestur nú eftir hádegið til svonefnds Ísafjarðar og hlera hvort mikið sé um óvini ríkisins og þá þar. Ferð þessi mun taka 3 daga og óvíst um aðgang að tölvu og neti á meðan.
Pakkar niður hlerunargræjum í sindrandi og blikandi áltöskur, vel pússaðar
Til Svalbarða ?! Hrökklast afturábak og hrasar við Á gamla Gestapóinu var nefnilega ákveðið að nóg væri að hafa einn Ísafjörð og því var Ísafjörður á Vestfjörðum annaðhvort fluttur til Svalbarða og sameinaður þeim Ísafirði er þar var fyrir eða þá að honum var gjöreytt. Því miður munum vjer eigi hvort því hæstvirt ritstjórn stal fortíðinni.
Ég er komin aftur. Ég gæti bara best trúað að þessi Ísafjörður hafi verið við Svalbarða, þvílíkur var kuldinn, fyrir utan um tvær klukkustundir á fimmtudaginn. Ég hélt ég myndi vera á mörkum hins byggilega heims, en komst að því að ég var langt fyrir utan mörk hins byggilega heims.
Nuddar saman höndunum og reynir að koma hita í þær aftur
Reynt var stöðugt að leggja stein í götu mína á báðum leiðum, reyndar marga steina og fulllyrtu menn að þetta væri ofaníburður. En slíkt á að vera til að bæta vegi, ekki gera þá verri.
Klórar sér í höfðinu
Þarna einhvers staðar er verið að leggja veg yfir fjörð. Hleraði ég að vegurinn sigi stöðugt ofan í fjörðinn, þvert ofan í spár umhverfisrannsókna. Einnig hleraði ég að verið væri að hugsa um að fergja veginn til að flýta fyrir siginu. Tel ég að það muni vera rétt, því við vegarendann sat maður í bíl og sýndist mér hann vera að hugsa.
Hittir þú enga vestfirska Gestapóa?
Nei, ég hitti hvorki vestfirska né svalbarðíska Gestapóa.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Hins vegar fylgidst ég með er ungur sveinn var fermdur dýrum varningi eins og segir í kvæðinu og komust allir klakklaust í gegnum þann gjörning og komst ég að lokum heim í faðm Gestapó.
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Gott að sjá þig aftur... Gestapó er bara ekki söm án Krossgötunar...
Já, það þarf að svara fullt af laumuinnleggjum. Ljómar upp
Vjer vorum einmitt rjett í þessu að laumupúkast í bundnu Ljómar upp.