Ekki skrítið, ég hleraði einhvers staðar að þú værir barnlaus.
Blikkar Dulu
MMMM þú ert duglegur hlerariBrosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Bregð mér í imbagláp.
Jæja, ég er að hugsa um að horfa aðeins á The Muppet Show, Special Collectors Edition, sem ég fékk mér í dag, áður en næturóþol verður of mikið.
Ég er því formlega frábrugðinn.
Ég verð frábrugðin til morguns, fyrir utan hvað ég er frábrugðin almennt, en það er önnur saga.
Vegna spítalavistar ferð ég frábrugðinn fram á föstudag eða laugardag.
Vonandi færðu góðan bata við veikindum þínum og mætir aftur tvíelfdur í teningakastið.
Vegna spítalavistar ferð ég frábrugðinn fram á föstudag eða laugardag.
Megi allt ganga þér í haginn og meira til.
Vonandi getur læknaliðið gert þig eldhressan og góðan á ný. Er strax farin að sakna kóngsa síns.
Góðan bata kæri Herbjörn minn.
Kóngsa? Varstu að tala við mig? Ég hef ekki talað við neinn lækni. Nema dr. Zoidberg en það var um spilaskuldirnar hans.
Herra Konungur Baggalútíu. Hneygir sig í lotningu. Gafstu dr. Zoidberg upp spilaskuldir sínar í tilefni 3ja og hálfs árs rafmæli síns? Lýtur höfði og sendir góðar bata hugsar til Herbjarnar
Tja, nei. Ég braut hnéskeljarnar á honum og hækkaði vextina í 500%.
Hugsar
Kannski ég hefði átt að gefa honum blóm í tilefni dagsins.
Hugsar með Hakuchi Kannski blóðrauð blóm eða skeljasafnið þitt eða hnébuxur.
Auðvitað! Ég sendi honum blóm í rafmælisgjöf en sendi enn frekari skilaboð í staðinn. Tvær flugur í einu höggi.
Dýfir slatta af fíflum í svínablóð og sendir Zoidberg ásamt afmæliskorti þar sem stendur: Sælla er að borga en þiggja.
Ég mæli með að senda honum í rafmælisgjöf blóðrauðar hnébuxur með skeljamynstri.
Er frá brugðin í smá tíma. Sjáumst ssskurnar.Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ég er kominn heim aftur, gallblöðrulaus. Ljómar upp
velkominn og til hamingju með vel heppnaða gallblöðruaðgerðStekkur hæð sína