Hér geta menn látið vita ef þeir einhverra hluta þurfa að bregða sér frá. Vinsamlegast greinið vel frá ástæðum brotthvrarfs.
Ég ætla að bregða mér frá, Þarf að skreppa til Söðvarfjarðar til að ná mér í ræsir í sendibílinn. Kem aftur seinnipartinn. Bless á meðan.
Ég ætla að bregða mér upp í rúm og sofa þar þangað til einhverjum hentar að vekja mig til lífsins.
Var að ná í nýju bókina um Eragon, Öldungurinn og ætla að gerast bókaormur í einhverja klukkutíma.
Farin að sinna afleggjurum og sunnudagskrossgátunni
Snilldarhugmynd hjá þér, Offari að stofna þennan þráð. Ég er þó ekkert að fara í bráð.
Ég er frábrugðin aftur, því nú er sunnudagskrossgátan loksins komin.
Gefur frá sér vellíðunarstunu og ljómar uppxT
Enn og aftur frábrugðin. Hlýt bráðum að verða stórskrítin. Að þessu sinni bregð ég mér frá til fegurðarblundar.
Starir þegjandi út í loftið, vonandi er biðröðin til lýtalækningaaðgerða ekki löng
bregð mér frá vegna efnaskipta (lesist - pissa)
Neyðist víst til að sofa eitthvað.
Skjáumst næst þegar ég vakna
JÁ Sömuleiðis, gúdd næt
Ljómar upp
Hér geta menn látið vita ef þeir einhverra hluta þurfa að bregða sér frá. Vinsamlegast greinið vel frá ástæðum brotthvrarfs.
Ertu orðinn arfavitlaus mannfjandi? Ertu kannske í Fíknó? Ég ætti nú ekki annað eftir en gefa alþjóð skýrslu um mínar ferðir.
Ég í dag á Stokkhólm stefni
Staffan Nilsson hitta verð
Fimmtán kíló fíkniefni
fæ ég þar af bestu gerð.
Ertu nú ánægður?
Hvenær verður þú komin heim? Ljómar upp
Verður þú í móttökunefndinni? Það verður sennilega margt um manninn.
Góðan dag, ég er að fara í jeppaferð þannig að ég verð ekki við í dag. Kem aftur í kvöld.
Jeg er að fara á hausinn. Hef ekki hugmynd um hvurnig gengur að príla upp aftur.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann