Hér mega einungis þeir sem eru bláir á lit skrifa.
Aðrir verða skotnir á færi eins og hundarnir sem þeir eru!
Ég sé nú ekki betur en að þú sért grár eins og ég. Hleypur í burtu
Er sjónin farin að gefa sig?
Ég er meira blár en þið.
En ekki ætla ég að vera með kynþáttafordóma og henda ykkur út.
Skál !
Vjer erum bláir að innan þökk sje kóbaltneyslu. Að utan hefur örlítið af gulu blandast bláa litnum Sýpur á fagurbláum drykk.
Arrrhhh! Ég vissi að öfl eyðileggingarinnar myndu rústa þessum þræði fyrir mér.....! Þetta er alveg eins og með hámenningarþráðinn. Menn geta ekki setið á sér!
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Lítur inn
Reynir að bjarga þræðinum
Daginn Þarfi.
Daginn. Ertu með einhver ráð gegn þessum snjósköflum?
Bara draga fyrir gluggana og láta eins og þeir séu ekki þarna.
Góð hugmynd. Ég er búinn að draga fyrir og er kominn upp í ból með steinsofandi kettinum. Svo verður þetta vonandi farið á morgun.
Bið að heilsa kettinum. Er hann blár?
Reyndar ekki - enda leyfi ég honum ekki að tjá sig á þessum þræði. Hann biður þó að heila til baka.
Daginn. Ertu með einhver ráð gegn þessum snjósköflum?
Ég vaknaði illa vankaður í morgun og leit út um gluggann.
Hjartað tók kipp og ég ætlaði að skófla sköflunum í nefið á mér.
Því miður gekk dæmið ekki upp.
Takk takk, klóraðu honum bak við eyrað fyrir mig.
Þetta er alveg ljómandi þráður!
Ljómar upp
Skál fyrir því! xTxT