Hér er Sjálf
Um Sjálf
Frá Sjáfi
Til Sjálfs
Svo má auðvitað gera mig persónulegri og tengjast mér tilfinningaböndum. Þá segir fólk að sjálfsögðu:
Hér er Sjálfið
Um Sjálfið
Frá Sjálfinu
Til Sjálfsins.
Þetta er auðvitað miklu notalegra. Ljómar upp
Þetta er ágætis staður til að minna fólk á að það er enginn broddstafur í nafninu Hexia. Mér er fullkunnugt um að mannanafnanefnd segi að sá ritháttur samræmist líklega ekki íslenskri rithefð, og er ég sammála þeim úrskurði. En þar sem ég er sérvitur gömul norn og hef þar að auki dvalið langdvölum á hinni broddstafalausu Italiu, hef ég í seinni tíð tamið mér að skrifa nafnið mitt svona.
Og hananú.
Þið vitið svosem allflest hvað ég heiti. Engin ástæða til að fara nánar í það.
-
Það er rétt að minnast á að albin skal rita með lágstöfum að jafnaði, sérviska í mér veit ég vel en látið það eftir mér. Ef einhverra hluta vegna finnist þér þörf á að notast við hástafi, ritaðu allt nafnið með hástöfum, sérviska í mér. Veit ég vel. En láttu það eftir mér.
Þeir sem eitthvað hafa við þessa ósk að athuga hafa unnið sér inn bol. Gjörið svo vel.

Líka í upphafi setninga?
Ef það er ekki of mikið vesen. Blótar herfilega og rífur hár sitt
Mig langaði til að breyta en ég kannbara ágætlega vð þetta nafn, ég ætti kannski að fá tillogur um nýtt nafn.
Mig langaði til að breyta en ég kannbara ágætlega vð þetta nafn, ég ætti kannski að fá tillogur um nýtt nafn.
Dula? Annars kann ég ágætlega við þig og nafnið þitt.
Dula er nú farið birtast æ oftar sem gælunafn á þér, svo þú gætir verið Dula eða Dularfulla konan.
Flissar
Nema þú viljir algera persónuleikabreytingu?
Ég kann ágætlega við nafnið mitt, enda nota ég það oft í raunheimum þegar ég þarf að losna við óæskilega vonbiðla. Einu sinni var ég reyndar Janet Weiss, ópera frá Börmíngham.
Vér rákum augu vor í það að hér hafa menn kynnt fallbeygingu nafna sinna. Vér ætlum oss eigi að sleppa því, þar eð borið hefir á sterkri beygingu nafns vors. Það beygist svo:
Nefnifall: Fergesji
Þolfall: Fergesja
Þágufall: Fergesja
Eignarfall: Fergesja
Er mönnum, dýrum, fjöltengjum og öðrum bent á að nafnið beygist eigi öðruvísi. Virðið það.
Ég kann ágætlega við nafnið mitt, enda nota ég það oft í raunheimum þegar ég þarf að losna við óæskilega vonbiðla. Einu sinni var ég reyndar Janet Weiss, ópera frá Börmíngham.
Weissssss........Klórar sér í höfðinu Er það nafn ekki upprunalega af austfjörðunum?
Ég vil benda á að enginn greinir er í Þarfagreinir.
Ég vil benda á að enginn greinir er í Þarfa.
?
Ég vil benda á að enginn greinir Þarfa.
?
??
Ég vil benda á að ein gin greinir Þarfa.
?
??
Ég vil benda á að ein greinir Þarfa.
?
??
Ég vil enda á að ein greinir arfa.
?
??