Ég vil benda fólki á að fyrra nafnið mitt, Mikill, beygist eins og Lykill.
Mikill Hákon
Mikil Hákon
Mikli Hákoni
Mikils Hákonar
Einnig ætla ég að krefjast þess, í ljósi þeirrar merkingar er aðrir lögðu í þetta nafn, að ég fái nafnbótina "Hinn Mikli" þannig að eg muni heita Mikill Hákon hinn mikli.
Þá er það komið á hreint, ég hef greinilega misskilið þetta allt saman.
Maribo beygist eins og Maribo. Létt og liðulega Ljómar upp
Það getur verið afar óheppilegt að beygja lykil, þeir eiga það til að brotna þegar þeir eru réttir aftur.
Crap.
Nú á ég aldrei eftir að nefna þig á nafn aftur, sökum þess að það færi of mikill tími í að rembast við að fallbeygja nafnið þitt.
Einfaldast er að skammstafa nafnið niður í MH Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Og ef maður vill vera flottur á því... þá EmmHá. Ljómar upp
Já en þá gæti óneitanlega komið upp misskilningur ef ég færi að nota þessa skammstöfun í daglegu tali, en myndi svo úr raunheimum tilkynna að ég hefði farið upp í MH í dag að heilsa upp á gamla kunningja.
Tvennt er það í máli yðar, Tigra, er vér skiljum eigi til hlítar. Í fyrsta lagi eru það svokallaðir raunheimar, er virðast vera einhver veröld utan Baggalúts, er eigi getur staðizt, þar eð utan Baggalúts er einungis ginnungagap. Í öðru lagi er það svokallað MH, en vér vitum eigi til þess að nokkuð slíkt sé til, utan kannske Mikil Hákon. Kannske þér gætuð frœtt oss?
Já en þá gæti óneitanlega komið upp misskilningur ef ég færi að nota þessa skammstöfun í daglegu tali, en myndi svo úr raunheimum tilkynna að ég hefði farið upp í MH í dag að heilsa upp á gamla kunningja.
Oj.
Kannske þetta sé rétti vettvangurinn til að ítreka það að nafn mitt er Tina St.Sebastian, og beygist fyrra nafnið en eigi það seinna.
Tina St.Sebastian
Tinu St.Sebastian
Tinu St.Sebastian
Tinu St.Sebastian
Auk þess vil ég taka það fram að fornafnið ritast með i-i en ekki í-i, og einungis einu n-i, ekki tveimur.
Mikka mús má beygja og sveigja að vild Gefur frá sér vellíðunarstunu
Nafn mitt er Texi. Texi Everto. Ég vildi að ég gæti sagt ykkur frá uppruna þess, sagan sú er bæði skrautleg og skemmtileg og tengist leigubílum ekki á nokkurn hátt. En því miður man ég hana ekki í augnablikinu, ég held stundum að ég sé með alshæmer, svei mér þá.
Hvort er það frá Tinu Steinvör eða frá Tinu Steinvöru?
Þegiðu Gimlé.
Eftir að hafa rannsakað aðeins þá hef ég komist að því að nafnið mitt er líklega latnenskt að uppruna og þýðir dulin eyðilegging, eða eitthvað í þá áttina.
Það finnst mér samt passa illa þar sem ég er svo uppbyggilegur og sjarmerandi náungi.
Hvaðan ætli ég hafi fengið þetta á sínum tíma? Klórar sér í höfðinu
Aulinn
Aulann
Aulanum
Aulans
Hættið svo að kalla mig Aulu.
Krossgötur eru oftast ekki beygðar. Þær eru jafnan þráðbeinar. Sama má segja um krossgátur, þó í þeim felist gjarnan beygð orð.
Nafnið mitt hefur nú ruglað nokkra, enda hvorugkyns kvenkynsorð.
Stelp
Stelp
Stelpi
Stelps
Stelpið
Stelpið
Stelpinu
Stelpsins