Starir þegjandi út í loftið
Einmitt það sem ég hafði ekki hugsað mér, en takk samt. Mér finnst þessa ásjónu skorta svolítið svipmót Baggalútíu.
Pandan er..... uppá unglingísku.... gg
Orðlaus af aðdáun
Já, pöndur eru voða sætar þangað til þær fara að éta bonsai-bambusinn þinn...
Hvernig er með þetta hagyrðingamót, þarf maður að skrá sig til að taka þátt?
Hmmm kynningin búin...
Hugsandi
Ef maður er með þarf þá að henda vísu í alla dagskrárliði?
Nei bara það sem þú getu það er allt í lagi þó að kynningin komi seint.
Ég ætti kannski að heita spyrjandinn Starir þegjandi út í loftið
... en ég var að velta fyrir mér þessum tengingaleikjum og þá datt ofan í höfuðið að það væri nú ljómandi að hafa svona bókstafateninga til að varpa. Það væri nú hægt að gera skemmtilega leiki úr því. Fyrirspurnin er sem sagt hvort það sé til í einhverjum hámerkilegum áætlunum ríkisins að útbúa slíkt?
Það verðurðu að ræða við ritstjórn, sem gæti þá mögulega sett tækniórangútana í að búa svoleiðis til, þó mér þyki það ólíklegt.
Fyrirspurn til Gimlé í framhaldi af greinargóðri útskýringu hans við félagsrit mitt "Í tilefni þúsundasta innleggsins":
Hitt teljum mér miklu, miklu meiru varða og það er að forsetningarnar „að“ og „hjá“ stýra þágufalli. Dæmi: „enter hjá baggaluti.is“, „jardgong hjá speli.is“, „halldor hjá ísafirdi.is“.
Ég er nú svo lengi að hugsa, að mér datt nú ekki í hug að spurja að þessu fyrr en nú (löngu síðar):
Má ekki segja að baggalutur.is sé allt eitt orð, og þar með sé það í þágufalli þar sem "is" er eins í öllum föllum?
Starir þegjandi út í loftið
Ég heimta almennilegt fyrirspurnarsvæði strax.
Hverjir eru friðargæsluliðar?
Það eru þeir sem gæta friðar. Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Flissar
Ég var að vonast eftir lista yfir Bagglýska friðargæsluliða.
Það er misjafn eftir svæðum. Ég man nú ekki hverjir eru hvar.
Vlad (held hann sjái um Menning og menntir, fyrir utan að vera forseti vor)
Skabbi (held hann sjái um Málstofuna, eða Matstofuna)
Ívar (held hann sjái um að kettirnir skíti ekki í Sandkassan)
Þarfi
Þetta eru þeir sem ég man eftir með lyklavöld til að byrja með. Svo hefur ritstjórn masterlykil að öllu.
Update
Sem minnir mig á það.... ég enn ekki fengið lykla að kompum og kytrum hér. Blótar herfilega og rífur hár sitt
Af hverju tæmdist allt í einu "Hvað er nýtt"-listinn minn?
Blótar herfilega og rífur hár sitt