— GESTAPÓ —
Ort um árshátíð
» Gestapó   » Kveðist á
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Altmuligmanden 15/11/06 02:25

Nú skal yrkja um alla þá sódómísku og siðlausu viðurstyggð sem virðist hafa átt sér stað á árshátíð Baggalútíu. Eins gott að maður var ekki þar. Múahahahahaha!!!! ‹Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Altmuligmanden 15/11/06 19:00

Persónurnar í þessum brag og atburðir eiga sér ekki fyrirmyndir í raunveruleikanum. Þær eru alfarið á ábyrgð höfundar. Þó skal upplýst að höfundur þjáðist af erfiðum draumförum eftir að hann las hér hræðilegar frásagnir af atburðum á Ljóta-Andarunganum og varð vitni að hjaðningarvígum í kjölfarið og setur það ugglaust mark sitt á yrkisefnið. Eigi má afrita efni bragsins að hluta eða í heild eða misfara með á annan hátt nema með skriflegu leyfi höfundar:

Sívertsen Ívarinn, syngjandi vaðalinn,
sauðdrukkinn gígjuna sló.
Bar þar að Regínu berandi kaðalinn,
blítt að sér söngvarann dró.

Strauk hún um botn hans með frjálslegu fasinu,
fegurð hans vakti hennar þrá.
Sívertsen Ívar á sautjánda glasinu,
saklausan hýddi hún þá.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Regína 15/11/06 19:56

Hvað er þetta? Hvað er hér?
Hvers á ég að gjalda?
Korkskrúfarakappi er
kominn hér til valda?

Ónáttúru óðar ver
-að yrkja þennan vaðal !
Segðu bara satt sem er:
Sjálfur baðst um kaðal !

LOKAÐ
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: