Sögusögn, goðsögn ... eitthvað svoleiðis. Líka einhver þrálátur orðrómur sem er ekki sannur.
Hehe nei, en ég virðist vera búinn að eyðileggja þennan leik. Ég ákvað bara í gríni að henda inn þessari einstaklega kaldhæðnu spurningu í kjölfar innleggsins hans Húmbaba en svarið stendur samt varla undir spurningunni þar sem það er ekkert sérlega merkilegt. En mýtan segir samt að ég hafi fleygt inn Röntgenmynd af höfðinu mínu í því yfirskyni að finna fluguna, þetta á víst að vera myndin:
Mér virðist sem þú hafir numið þína kaldhæðni frá Alanis Morissette.
En til að reyna að vera uppbyggilegur með þessu innleggi mínu, þá spyr ég: Hvað segir mýtan okkur að ónefnd bandarísk kona hafi gert með örbylgjuofnunum sínum og afhverju gerði hún það?
Hún hefir líklega stungið ónefndum ketti inn í hann í ónefndum tilgangi.
Þú ert á réttri leið Fergesji, en mýtan sem ég hafði í huga snerist ekki um kött.
Þá hefir hún eflaust stungið ónefndu dýri þangað inn.
Þá hefir hún eflaust stungið ónefndu dýri þangað inn.
Hárrétt! En um leið tel ég það augljóst að það er ekki svarið sem ég var að leita að.
Þetta voru sem sagt margir örbylgjuofnar?
Hugsi
Þetta voru sem sagt margir örbylgjuofnar?
Hugsi
Nei, þetta var hin svokallaða innsláttarvilla. Af sagnfræði og safnafræðilegum ástæðum kýs ég að halda henni í upphaflegu formi.
Hehe nei, en ég virðist vera búinn að eyðileggja þennan leik. Ég ákvað bara í gríni að henda inn þessari einstaklega kaldhæðnu spurningu í kjölfar innleggsins hans Húmbaba en svarið stendur samt varla undir spurningunni þar sem það er ekkert sérlega merkilegt. En mýtan segir samt að ég hafi fleygt inn Röntgenmynd af höfðinu mínu í því yfirskyni að finna fluguna, þetta á víst að vera myndin:
Mér virðist sem þú hafir numið þína kaldhæðni frá Alanis Morissette.
En til að reyna að vera uppbyggilegur með þessu innleggi mínu, þá spyr ég: Hvað segir mýtan okkur að ónefnd bandarísk kona hafi gert með örbylgjuofnunum sínum og afhverju gerði hún það?
Þetta var engin andsk... innsláttarvilla. Þetta var hrein og klár málvilla og reyndu bara að biðja afsökunar, þú þarna... þarna... flissandi angurgapi.
Eftir að hafa lesið lygar falsmiðlanna í morgun komumst vér að niðurstöðu þeirri að verið geti að Undir réttu nafni hafi átt við þá konu er lét dóttur sína inn í slíkan ofn með þeim afleiðingum að dóttirin lézt. Vera kann að hún hafi gjört það í þeim tilgangi að finna út hver áhrif örbylgjuofnar hafa á mannslíkamann.
Þetta var engin andsk... innsláttarvilla. Þetta var hrein og klár málvilla og reyndu bara að biðja afsökunar, þú þarna... þarna... flissandi angurgapi.
Sjálfur getur þú verið klámvilla.
Ég las í ákveðnu blaði um daginn að á almenningsklósetti í Colorado hefði fundist í einum bás risavaxið dýr. Hvaða dýr var það og hvernig reyndist svo sannleikurinn í þessu máli vera?
Var þetta krókódíll sem átti að hafa fundist?
Risavaxin rotta sem reyndist vera ... bifur?
Nei, þú ert heldur að kólna með þessari ágiskun...sá þetta virkilega enginn í fréttum?