Hér getið þið deilt með samgestapóum einhverju sem þið hafið tekið eftir nýlega eða upp á síðkastið.
Ég hef til dæmis tekið eftir því síðustu mínútur að húðin á puttunum mínum er að flagna af vegna bassa- og gítarplokks.
Ég hef tekið eftir því að Doninn býr oft til áhugaverða leiki.
Ég hef tekið eftir því að Hvæsi er einstaklega skarpur.
Ég hef einnig tekið eftir því að við Þarfagreinir höfum keimlík gleraugu.
Ég hef tekið eftir því að það er byrjaður nýr leikur
Ég tók eftir augýsingu um Þarfalaga hesthús.
Ég hef tekið eftir bleikum fílum upp um alla veggi, sem éta gúrkál (hvað sem það nú er) út um allt hús... alveg síðan á laugardagkvöld.
Gúrkál?
Er það svona einhverskonar maukuð gúrka?
Hvað veit ég? Ég tók eftir því að þetta átu blessaðar skepnurnar þó ég, fávís maðurinna, viti minnst um hvað það er og hvort það vex á trjám eða runnum.
Ég hef tekið eftir því að rassinn á mér lítur út fyrir að vera stærri en hann er í raun og veru í þessum buxum.
Krossbölvar og virðir fyrir sér afturendann í spegli
Ég hef tekið eftir því að þú hefur ansi lögulegan afturenda. Flýtir sér að hugsa um eitthvað annað
Ég ef tekið eftir því að einhverjir fóru á árshátíð sem að ég fór ekki á.Brestur í óstöðvandi grát
Ég tók ekki eftir því að Upprifinn væri á árshátíðinniBrestur í óstöðvandi grát
Ekki ég heldur. Ég tók heldur ekki eftir því að hann hafi skráð sig. Grætur einnig mjög svo óstöðvandi og bitrum tárum
(Má annars tala hér um það sem maður tekur ekki eftir líka?)
Ég hef tekið eftir því að þú hefur ansi lögulegan afturenda. Flýtir sér að hugsa um eitthvað annað
Gefur Sundlaugi knús