Nei - þekktari en jafnvel þau.
Getur varla verið Tinni?
Hvorugir þeirra.
Nú er ég farinn að velta fyrir mér hvort ég hafi brotið annað hvort skráðar eða óskráðar reglur leiksins. Það sem um ræðir er sannarlega myndasaga, en hún kom ekki út sem bók.
Jæja ...
Grettir?
Pondus?
Þið eruð farin að hugsa á næstum réttum nótum, en svarið er þó enn ekki komið.
Rocky?
Calvin & Hobbes?
Neibb og neibb.
Tarzan? Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
O nei.
Þetta er mjög þekkt teiknimyndasaga.
Ljóska? Eða Stína og Stjáni eða hvað sem hún heitir?
Nei.
Hún hefur komið út nokkuð lengi hérlendis.
Já!
Hvað annað?
Glottir eins og fífl
Nánar til tekið er þessi setning úr sögu þar sem Bjarnabófarnir smygla sér inn í setur milljarðamærings á meðan þar er verið að taka upp þátt um lífstíl ríka fólksins. Þegar milljarðamæringurinn uppgötvar að nokkur málverkanna hans eru horfin kennir hann sjónvarpsmanninum um og kyrkir hann. Þátturinn er í beinni útsendingu, og því ákveður sjónvarpsfólkið að rjúfa útsendinguna með þessari tilkynningu. Skemmtilegt nokk þá sést líka gömul kona á sjávarbotni að flétta körfu á skjánum.