Ég er að fresta þynnkunni þangað til á morgun. Skál.
Ég var að versla smotterí í Bónus.
Að stríðskraftast þegar ég ákvað að sjá hvað væri að frétta af lútnum.
Ég var að vinna um borð í togara. Alltaf svo fokking ánægjulegt.
Ég var að horfa á Monster með Dylan Moran sem var fínasta afþreying. Ljómar upp
Ég var að opna bjór, þriðji bjórinn í þessum mánuði.
Ég var að opna bjór, þriðji bjórinn í þessum mánuði.
Þetta gengur ekki, þú verður að fara að gera eitthvað í þínum málum. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
ég var að telja upp í 42.Ljómar upp
Var að hleypa kettinum út. Held að það hafi verið það sem hún var að biðja mig um. En hún fær þá ekki að koma inn næstu 5-6 klukkutímana. Hún bað um þetta, þarna...
Ég var að ferðast í tíma. Fór aftur á bak um eina klukkustund og færðist því nær nútímanum (en ég var jú tveim tímum inni í framtíðinni áður).
Ég var að vakna eftir verðskuldaðan nætursvefn.
Ég var að opna bjór, þriðji bjórinn í þessum mánuði.
Þú áttar þig vonandi á því að bjórinn rennur út á tíma. Eitthvað skelfilegasta sem fyrir menn getur komið er að veigarnar falli á tíma.Hryllir sig
Var að taka eftir því að ég var einnig að ferðast í tíma. Var einnig að taka bjórdósina sem ég opnaði í gær af borðinu, hún var enn hálftóm (hálffull).