Ég var að gefa ungunum brauð.
Ég var að borða skyr-boost. Djöfull elska ég að eiga blandara.
Ég var að fá mér kodda í morgunmat.
Felur rúmfötin fyrir Dúdda
Koma heim úr vinnu.
Röfla smá
Skuttla gamla settinu á djammið.
Rifja upp að einum ákveðnum Gestapóa virðist vera í nöp við mig og ekki hef ég hugmynd um hvers vegna... Viðkomandi hefur þó ekki sést hérna lengi svo ég er bara sátt.
Veistu... ég hef lent í þessu sama.
Ætli þetta sé sami Póinn?
Nefnið nöfn hérna.
Ég var að klöngrast í gegnum Múlan Rús. Ofmetin mynd þó settið hafi verið flott.
Nöfn verða lesin upp við hátíðlega athöfn á árshátíðinni (eða pískruð í eyru yfir 7. glasi)
Annars var ég bara að vakna.
Ég var að borða hádeginsmatinn, kótilettur. Nú er ég kótilettukarl.
Ég var í baði. Best að klæða sig núna. Það þykir ekki fínt að vera allsber á Internetinu.
Ég var að horfa á blálokin á Plein Soleil sem ég gleymdi að ætti að vera á dagskrá Sjónvarpsins. Frábær mynd og mun betri en The Talented Mr. Ripley sem er byggð á sömu bók. Alain Delon er langtum betri Ripley en sætabrauðsdrengurinn Matt Damon.
Ég var að borða kleinur og drekka mjólk...
Ég var að hlæja mikið að fyndinni sögu og táraðist meira að segja pínu. Ahhhh....