Ég var (áðan) að koma heim af rösquiz þar sem við Þarfagreinir kræktum okkur í ókeypis öl og Anna Panna og gestur urðu í 2-3 sæti! Þær fengu líka öl Ljómar upp
Ég var sumsé í Rösquiz og varð í öðru sæti (þriðja er sko ekkert talið með)! Og ég fékk öl! Hikstar
Ég var að velta fyrir mér hvað þetta Rösquiz væri.
Ég var að fletta því upp á alnetinu (Reyndar var ég þarna líka og vissi þetta fyrir).
Ég var að lesa um Rösquiz á hlekknum frá Þarfa. Ljómar upp
Núna var ég að skella brauði í ofninn og búa mig undir einveru-kvöld.
Ég var að enda við að borða harðfisk með smjeri.
Ég var að svara nokkrum spurningum um litninga og erfðir.
Ég var að rífast við norn! Nei, ekki elskulega Nornina okkar, heldur háværa, illþefjandi og frekjulega norn (takið eftir litla "n"-inu). Hún á ekkert annað eftir en ofnhurðina, það get ég svarið.
Ég keypti mér nýjar buxur.
Ég var að rífast við norn! Nei, ekki elskulega Nornina okkar, heldur háværa, illþefjandi og frekjulega norn (takið eftir litla "n"-inu). Hún á ekkert annað eftir en ofnhurðina, það get ég svarið.
Já, þær misstu sumar af félagsfærni námskeiðinu sem var haldið eftir þetta leiða atvik með Þyrnirós.
Ég dúxaði hins vegar á því Ljómar upp
Þyrnirós? Ég hélt að Hans-og-Grétu atvikið hefði hleypt öllu í bál og brand í Nornafélaginu...
Annars vil ég taka það fram að ég náði prófinu líka. Það var um svipað leyti og ég hafði fundið hina einu sönnu kakóuppskrift. Ljómar upp
Hans og Grétu - málið var það sem byrjaði þetta allt. En eftir Þyrnirósar-dæmið voru settar reglur um félagslega hegðun.
Við vorum komnar með svo rosalega slæmt orðspor að PR fulltrúinn var í 100 ár að rétta okkar hlut í samfélaginu.
Svei mér ef fulltrúinn okkar þarf ekki enn að vera á fullu... fólk getur verið svo grimmt og heldur að allar nornir séu vondar. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég var að koma úr sturtu þar sem ég þvoði af mér barfýluna.
Ég var að koma úr barfýlunni og ég vona að ég lifi þetta hreinlega af. Ég nenni allaveganna ekki í sturtu.
Sit á bibbanum eftir sturtuna þarsem ég var einnig að þvo af mér barfíluna.Glottir eins og fífl
Ég var að koma úr barfýlunni og nenni engu öðru en að sofna. Krossfesti mig hver sem vill.