Hakuchi er engin meðalvitleysingur sem lætur hræra í sér með einhverju kjaftæði. Saðfastur og virðulegur gegnir hann konugsskyldum sínum af aðdáunarverði fágun og virðuleika sem ekki er hægt að læra, heldur erfist aðeins meðal konungborinna.
Huxi er sniðugur, og alltaf gaman að lesa hvað hann hefur að segja um aðra. Svo kann hann að velja sér fræðasvið við hæfi.
Regína er stórgóð og mikilmenni í alla staði. Hún stígur aldrei feilspor í mannlegum samskiptum og vísur hennar eru ungum eyrnablautum gemlingum eins og mér innblástur og hvatning til að reyna að koma þó ekki væri nema tánum þar sem hún hefur hælana.
Andþór er únglýngurinn og tengdamömmu draumurinn sem hefur allt. Han er fagurlimaður gáfumaður . Hann hefur ávalt bros á vör með heilar og hreinar tennur og er glöggur í spilum .
Gísli Eiríkur og Helgi er margbrotinn og heillandi persónuleiki sem hefur þann sjaldgæfa eiginleika að hrífa fólk með sér.
Garbo är inte bara Bondegatans, lilla Greta hon är även världens ödmjukaste och raraste blomma och Upprifins bättre hälft
GEH talar svo góða útlensku, svo er hann svo sætur.
Einu skiptin sem mig langar til að skilja sænsku betur er þegar GEH tjáir sig á henni. Hann lætur sænskuna hljóma fallega.
Og viskustykkið í Dulu er sko í topplagi. Glottir eins og fífl
Það er skemmtilegra á Baggalút þegar Billi bilaði er virkur.
Það er notalegast á gestapó þegar Regína stráir yndislegheitum sínum yfir hvern þráð.
Dula er allur unaður heimsins samankominn í einni eðalsál. Svo er hún hugrökk að þora að bjóða okkur heim til sín þó hún vissi að hætta var á að ég skyldi mæta sótölvaður og samvikulaus helgargeðsjúklingur.
Þegar hún brosir til manna þá hlýnar þeim um hjartarætur þannig að þeir geta jafnvel farið út í kuldan úlpulausir.
Hún er æði!
Vá! Hvað Andþór er pottþéttur, hreinskilinn með góða sál og talar beint frá hjartanu. Heimurinn væri betri ef fleiri hefðu hans hugsun og orðafar.
Þegar Grýta hrósar öðrum verður maður afbrýðisamur.
Grýta er glögg og gefur sig í það sem hún tekur sér fyrir hendur. Ég sársakna hennar úr mafíuleiknum því hennar spilamennska auðveldar svo fyrir þorpsbúa að finna mafíósana. Aftur á móti vona ég að comebackið hennar komi ekki í næsta leik sem ég er mafíósi. [Glottir eins og fífl]
Upprifinn þó hann skjóti sér á milli þegar maður er að reyna að vanda sig með innleggið sitt er algjört eðalmenni og sennilega uppáhalds gestapóinn minn. Það skiptir engu máli á hvaða þræði það er, alltaf er það viðeigandi og mjög oft stórsniðugt.
Svo er það sérstakur heiður að hann skuli gefi sér tíma til að skjóta á mann á Skammast í bundnu.
Andþór er einstaklega almennilegur og kurteis maður sem á örugglega fleiri vini en aðrir póar.
Það eru engar stafsetningarvillur í innlegginu hér fyrir ofan sem bendir til þess að Upprifinn hafi verið allsgáður þegar það var skrifað.
Vanalega eru engar stafsetningarvillur í innleggjum Regínu.
Vladimir er orðinn forfallinn teningafíkill.