Gaman að sjá hvað lekur alltaf hressilega úr nefinu á þér þegar þú verður æstur.
Horið sjetterar svo vel við froðuna í munnvikunum.
Sláist þið bara ... það mun ekkert skyggja á þennan gleðidag.
Þurrkar gleðitár af hvörmum
Ég ætti nú að láta vaða í þig og snyrta aðeins til í kjaftinum á þér. Flotnös.
Þið rífist eins og stelpur. Hvernig væri nú að láta hnefana tala? Það er svoooo s...!
Já láttu nú endilega vaða í mig Enter! Manstu síðast þegar þú 'lést vaða í mig' - á ég að rifja það upp?
Reynið nú að tala fallega íslensku, þið eigið nú að vera fyrirmyndir hér.
ÚLLI FARINN!
Dansar gleðidans og hrindir Þarfa ofan í drulluna
Verður slagurinn tekinn upp aftur núna síðdegis? Bölvar sjálfum sér yfir að hafa tíðnisteikt fjórtán poka af örðbylgjupoppi á afþýðingarstillingu Tók 23 mínútur hver poki! Blótar herfilega og rífur hár sitt
Ljómar upp ÓKEYPIS FAGURBLÁR DRYKKUR FYRIR ALLA Í TILEFNI ATBURÐA ÞEIRRA ER HJER ER LÝST ! Þó svona nokkuð teljist til neyðarúrræða er samt tilefni til fögnuðar í þetta sinn, sjerstaklega sökum þess hve gaman var að fylgjast með innbyrðis deilum ritstjórnar Setur eftirlitsmyndavjelaupptökur inn í peningaskáp og er núna alveg viss um að verða aldrei sparkað út af Gestapó. Skál ! Sýpur á fagurbláum drykk
Ljómar upp og stekkur hæð sína og ræður sjér ei fyrir kæti
Popp og þrívíddargleraugu á línuna!!
Vlad! Jég blæði líka á fagurbláa drykki!
Miklu fargi hefur verið létt af Gestapó. xT
Ég veit eiginlega ekki hvernig mér á að líða með þetta. Ef Tony gat ausið svívirðingum yfir allt og alla af engu tilefni, af hverju var honum aldrei vísað frá? Hann fékk að vísu tveggja mínútna brottvísun, en ekki rauða spjaldið. Veltir fyrir sér af hverju í fáránlegum fiðurhænsnum honum datt í hug handbolti í þessu sambandi
Smábaggi var líka orðljótur og yfirgangslegur rekagáttarrugguhestur, en flestir hlógu þó að hans innleggjum og þótti bara gaman. Að vísu var Úlli nokkuð frábrugðin þessum tveimur (þremur) náungum að því leyti að hann var algerlega sundurlaus í sínu hranalega hraukafári.
Rifrildi ritstjórnar var virkilega spennandi, en eftir liggur að Úlli getur bara einfaldlega stofnað annað aukasjálf endalaust til að halda áfram ritriffilsskothríðinni. Ég tók þann pól í hæðina að hunsa hann algerlega á endanum og það hefði líklega virkað betur að allir gerðu það, frekar en að ögra honum með því að loka á aðganginn. Þar með er brotið blað í sögu Gestapó og er það ekki vel, að því er mér finnst.
Ég vil því gera kunngjört að ég lýsi hér með (í langan tíma) frati og frussi á aðgerðir þessar.
Klórar sér í hausnum og veltir fyrir sér hver verði næstur