Aðeins að spá, helst er best ef sem flestir svara... er of mikið um það að friðargæsluliðar skipti sér af innleggjum gesta hér í Skáldskaparmálum, hvernig viljið þið hafa þetta?
Nei.
Mér finnst þetta fínt eins og er. Ef friðargæsluliðar nenna að leiðrétta þá mega þeir alveg gera það. Fólki er það bara hollt að fá tilsögn. Að skrifa inn í innleggin er miklu betri leið til þess en að bía þræðina út með innleggjum sem eru eingöngu til leiðréttingar.
Mér finnst allt í lagi að þeir skipti sér af, því að í flestum tilfellum lærir maður af því.
Ég vil að eftirlitið sé öflugra þar semég er tregur við að hoppa yfir vísur sem mér finnst ekki í lagi og er líka tregur við að halda áfram ef ég er ekki viss. Betra eftirlit kemur í veg fyrir slíka stöðvun á þræðinum, vonandi erum við ekki of erfiðir við ykkur.
Þetta rennur nú oftast nær sem smurt... verst er hvað hinir gæslumennirnir mæta lítið þessa dagana...
Ég lít á innskot ykkar sem aðstoð en ekki afskiptasemi.
Ég hef mikið lært af ykkur og vona að þeirri kennslu sé ekki lokið.
Takk og skál!
Ég veit því miður ekki hver tók hann en sá hinn sami hefur ekkert misst út úr sér þó svo að hann hafi verið hér á ferli, þú ættir frekar að yfirheyra hina sexmenningana einhverjum þeirra hefur þóttt tími tilkominn að grípa í taumana og breyta lykilorðinu.
Kannski hefur ritstjórninni þótt tími til að skrúfa fyrir þessa kynvillinga. Það þyrfti hinsvegar að leyfa Snupra að fá friðargæslupennann svo hann gæti skammað okkur bögubósana.
Já, ég styð það... sýnist mér af stíl Gimlés að þar sé á ferðinni sá er mest var duglegur við að yrkja og snupra í nafni hlewagastiRs og mun ég því vera mjög fylgjandi því að hann fái friðargæsluréttindi, sérstaklega þar sem líklegt er að ég geti lítið verið viðstaddur Gestapó næstu vikur og mánuði... er að fara til útlanda í afvötnun... hugsanlega, á bara eftir að skrifa undir samninginn
Ég á of margt ólært eftir til að geta tekið djobbið að mér. Takk fyrir slettunaLjómar upp
Vjer viljum endilega að friðargæsluliðar hjer skipti sjer af kveðskapnum ef þeir nenna og hafa kunnáttu til. Vjer höfum a.m.k. lært af slíku. Skabbi hefur kunnáttu til þess en hverjir aðrir hafa hjer lyklavöld vitum vjer ei (Znatan kannski ?).
Vjer viljum endilega að friðargæsluliðar hjer skipti sjer af kveðskapnum ef þeir nenna og hafa kunnáttu til. Vjer höfum a.m.k. lært af slíku. Skabbi hefur kunnáttu til þess en hverjir aðrir hafa hjer lyklavöld vitum vjer ei (Znatan kannski ?).
Znatan, hlewa, Barbapabbi og ég... síðustu vikur hef ég verið nær einsamall og ef ég verð ekki hér í einhvern tíma, þá er hætt við að lítið verði friðargæslast hérna...
Eitthvað hefur þá brenglast við opnun eftir sumarlokun því eigi getum vjer sjeð að Barbapabbi eða hlewagastiR sjeu friðargæsluliðar. Það hlýtur þá að þurfa að fjölga þeim hjer.
Nú, ekki vissi ég að þeir væru dottnir út úr friðargæslu...
Það veistu vel að ef ég hefði lykilinn í mínum fórum að þá léti ég þig hafa hann. mér leið illa meðan ég hafði yfirráð yfir honum og var því feginn þegar einhver tók lykilinn af mér.
Viðurkendu bara þú lést mig hafa hann eingöngu til að Kvelja mína samvisku, ég neiddist til til troða mér niður fyrir hans plan til að einhver tæki við lyklinum en ég er samt fegin að hafa bjargað þér frá honum og gert þig þannig að betri manni.