Er þetta a.m.k. ekki dálítil spurning?
Ertu í vafa?
Leikur nú líka vafi á vafanum?
Er það vafafi?
Er þá efast um vafann?
Heldurðu að við séum einhverjir vafningar?
Snýr upp á sig Svona?
Getur þú ekki gert betur en þetta?
Hversu kröfuharður getur einn maður verið? Snýr ofan af sér
Jæja, hvenær á svo að þreyja Vestmannaeyjasund?
Hvernig væri að velja daginn með hagstæðustu vindáttina?
Í hvora áttina er betra að synda?
Eru bara tvær áttir?
Er hægt að fara í fleiri áttir en "út til eyja" og "inn til lands"?
Er kannski best að synda þaðan sem fólk er statt þegar vindar verða hagstæðir?
Endar maður þá þar sem ekkert fólk er, skjálfandi af kulda?
Vill enginn bíða eftir þér á hinum staðnum?