Ætil Ásmundi finnist krossgátur líka vera einhvers konar órit?
Eru einhverjar krossgátur órit?
Eru ekki allar þessar nútíma krossgátur með furðulegu gerfivísbendingunum allar eintóm órit? Hristir höfuðið svo hringlar í
Gerfivísbendingum? Ljómar upp og hlær
Eru gervivísbendingarnar þá í ljósaskiptunum?
Hafa þær ekki allar verið steggjaðar?
Eru steggir þá gæsaðir?
Fer það ekki eftir því hversu góða vini þeir eiga?
Semsagt, eiga steggirnir þá gæsavini?
Verða þeir ekki að eiga gæsavín fyrst?
Hvað eg nú það? Klórar sér í höfðinu
Forðar sér undan flösuhríðinni
Er það ekki eitthvað eins og þetta?
föstudagur, febrúar 20, 2004
flengið mig, elskið mig.
sleikið mig, elskið mig.
(Jón Arason, 1549)
Ef tíminn væri gæsavín og rúmið væri hunang.. þá væri maður bara fullur og klístraður. Ég hitti hana Rán frænku mína á kaffihúsi fyrir ekki svo löngu síðan, og frænda minn Þránd. Þau eru systkini en sá skyldleiki er aðeins merkjanlegur á skelinni sem umlykur þau, innrætið er svo ólíkt að því má líkja við folald og brunnklukku (Agabus bipustulatus). Rán er þá folaldið og Þrándur brunnklukkan. Útlitslega eru þau hinsvegar áþekk; augnsvipur, tanngarður og höfuðlag nokkurnvegin hið sama, þó meiri mýkt sé í svip Ránar og Þránd skortir allan kvenlegan þokka í hreyfingarnar.
Rán var nýkomin frá S-Ameríku og hafði margar sögur að segja. Það var ekki laust við að mig langaði til útlanda. Hugsanlega kíki ég á Hjört frænda í Amsterdam í páskafríinu, en í páskafríinu kemur Örn frændi heim til Íslands. Ég má ekki missa af honum.
Hvað á ég að gera?
Forðar sér undan flösuhríðinni
Eltir Golíat með greiðu að vopni. Ertu að segja að ég sé með flösu?
Reynir að greiða úr misskilningi
Og hver er spurningin?
Hver er spurningin??? Ert þú kannske spurningin? Væri ekki nær að spyrja hvar sé spurningin?